100 stundir af stjörnufræði
Í tilefni af Alþjóðlegu ári stjörnufræðinnar 2009 er efnt til verkefnis sem nefnist 100 stundir af stjörnufræði (100 Hours of Astronomy). Verkefnið er á góðri leið með að verða stærsta almenna vísindamiðlunarverkefni allra tíma en yfir 130 þjóðir standa fyrir meira en 1500 viðburðum af þessu tilefni. Talið er að yfir ein milljón manna um allan heim muni taka þátt með einhverjum hætti. Hér á Íslandi sjá Stjörnuskoðunarfélag Seltjarnarness og Stjörnufræðivefurinn um skipulagningu verkefnisins. Sjá nánar fréttatilkynningu.
Sólkerfisrölt
Laugardaginn 4. apríl munu nemendur í 7. bekk í Melaskóla setja upp líkan af sólkerfinu í miðbæ Reykjavíkur. Fyrst verður safnast saman á Ingólfstorgi í kringum smækkaða útgáfu af sólinni. Klukkan 11 verður síðan lagt af stað og gengið eftir Austurstræti og upp Laugaveginn þar sem reikistjörnunum verður raðað upp í réttum stærðarhlutföllum. Þeir sem eru í miklu stuði geta gengið alla leiðina upp á Hlemm þar sem Neptúnus lendir samkvæmt líkaninu! Sjá nánar fréttatilkynningu.
Stjörnuskoðunarkvöld - opið hús fyrir almenning
Við sólsetur 3. og 4. apríl hefst stjörnuskoðunarkvöld fyrir almenning um heim allan. Hér á landi bjóða stjörnuáhugamenn í Stjörnuskoðunarfélagi Seltjarnarness öllum áhugasömum að koma og skoða gígana á tunglinu og hringa Satúrnusar með stærsta sjónauka landsins. Stjörnuskoðunin fer fram í aðstöðu félagsins í Valhúsaskóla á Seltjarnarnesi og hefst kl. 21:00.
Umhverfis hnöttinn á 80 sjónaukum
Föstudaginn 3. apríl kl. 09:00 að íslenskum tíma hefst vefvarp sem nefnist ,,Umhverfis hnöttinn á 80 sjónaukum” og stendur yfir í sólarhring. Náttmyrkrinu verður fylgt umhverfis hnöttinn með viðkomu í nokkrum af stærstu stjörnuathugunarstöðvum heims. Áhorfendur um allan heim geta fylgst með stjörnufræðingum við störf sín, sent þeim spurningar og skilaboð og skoðað glænýjar ljósmyndir af alheiminum!
Meðal þeirra sjónauka sem heimsóttir verða eru Gemini og Keck sjónaukarnir á Hawaii, Ensk-ástralski sjónaukinn, sjónaukar á Kanaríeyjum, Stóri-Suðurafríski sjónaukinn, Very Large sjónaukarnir í Chile og geimsjónaukar eins og Hubble svo fáeinir séu nefndir.
Dagskrá
Fjölmargt er um að vera í tilefni af 100 stundum af stjörnufræði. Cosmos-maraþonið fer fram í Valhúsaskóla.
Hér fyrir neðan er dagskráin eins og hún liggur fyrir. Sækja á prentvænu pdf-sniði (212 kb).


