![]() | Andlitið á Mars |
Í júlí 1976 sveimaði Viking 1 geimfarið yfir Mars í leit að heppilegum lendingarstað fyrir systurfar sitt Viking 2. Ákjósanlegasta svæðið var á norðurhluta Mars sem kallast Cydonia. Myndir sem geimfarið sendi til jarðar sýndi sléttlendi og hæðir - hefðbundið landslag á Mars. Ein myndanna vakti þó meiri athygli en nokkur önnur, enda virtist hún sýna andlit sem starði út í geiminn.
Vísindamenn NASA töldu að þessi skrítna mynd myndi vekja áhuga fólks og birtist hún viku síðar í dagblöðum. Í myndatextanum stóð að myndin sýndi veðrað sléttlendi og að bergmyndunin fyrir miðju líktist mannsandliti vegna skugga sem virðast framkalla augu, nef og munn.
Það kom vísindamönnum nokkuð á óvart að sumt fólk taldi andlitið alls enga skynvillu. Því var haldið fram að um raunverulegt andlit væri að ræða, reist af vitsmunaverum til að vekja athygli manna þegar við hefðum tæknina til að fljúga til Mars. Minnir óneitanlega á 2001: A Space Odyssey! Næstu tvo áratugi ræddu áhugamenn um fljúgandi furðuhluti og geimverur um „andlitið“ í fjölmiðlum og á fleiri stöðum. Fólk taldi sig meira að segja sjá borgir, pýramída og aðrar byggingar á yfirborðinu.
Árið 1998 tók Mars Global Surveyor geimfarið aðra mynd af andlitnu í tíu sinnum betri upplausn en myndin frá Viking. Á myndinni sást fátt óeðlilegt. Flestir töldu sig sjá náttúrulegt fyrirbrigði. Unnendur samsæriskenninga héldu nú fram að NASA væri að reyna fela andlitið.
Þegar málið er skoðað er augljóst að hugmyndin um andlit sem merkjatæki er vægast sagt skrítin. Ef vitsmunaverur byggðu andlitið, hefðu þær þurft að gera það á seinustu hundruð þúsundum ára því mannkynið er ekki mikið eldra. Ef geimverur hefðu heimsótt jörðina fyrir 100 milljón árum, er líklegt að þær hefðu byggt risaeðliandlit. Annars væri það mögnuð tilviljun að þær slysuðust til jarðar þegar við vorum nýkomin til sögunnar.
Minna hefur borið á umræðum um andlit á Mars síðustu ár. Í apríl 2001 tók Mars Global Surveyor nákvæma mynd af svæðinu þar sem smáatriði niður í fáeina metra að stærð sjást. Sú mynd er 30 sinnum betri en myndin frá 1976 eins og myndin hér að neðan sýnir.
![]() |
| Fjallið fræga á Mars sem líkist andliti séð með augum Viking og Mars Global Surveyor geimfaranna. |
Mars Express geimfarið myndaði sama svæði árið 2006 og sá þetta ógnvekjandi andlit!
![]() |
| Þrívíð mynd af "andlitinu" á Mars séð með augum Mars Express geimfarsins. |
Eins og sjá má er andlitið á Mars ekkert annað afleiðing vindveðrunar og skondið samspil ljóss og skugga. Þetta er aftur á móti ekki eina svæðið á Mars þar sem finna má óvenjuleg mynstur.
Hvers vegna sér fólk andlit í ýmsum fyrirbærum?
Allir kannast við það að sjá dýr, mannsandlit eða annað í skýjum. Sama á við um bergmyndanir víða í náttúrunni en við þekkjum einmitt mörg dæmi um slíkt hérlendis. Fólk telur sig jafnvel sjá andlit þekkts fólks úr óskýrum mynstrum á veggjum eða gólfum og í örfáum tilfellum á samlokum eða tortillaflögu! Það er ekkert óvenjulegt við þetta enda er ástæðan vel þekkt í sálfræði.
Missýn (e. pareidolia) er sálfræðilegt fyrirbrigði sem felur í sér að óljóst og handahófskennt áreiti er mistúlkað sem eitthvað raunverulegt. Með þessu er átt við að manni finnst maður bera kennsl á eitthvað kunnuglegt en mistúlkar það ranglega. Hægt er að útskýra fjölmargar skynvillur út frá missýn, til dæmis birtingarmyndir Jesú Krists eða Maríu meyjar á ýmsum stöðum, karlinn í tunglinu, fljúgandi furðuhluti og skilaboð á hljómplötum sem leiknar eru aftur á bak. Missýn útskýrir líka hvers vegna fólk túlkar óhefðbundin mynstur á byggingum eða í náttúrunni sem andlit.
Frá því að við komum til sögunnar höfum við þróast til að bera kennsl á kunnugleg andlit. Skömmu eftir fæðingu sjáum við andlit móður okkar. Fólk les margt í andlit annars fólks og heilinn í okkur er mjög fær um að sjá andlit út úr mynstrum, jafnvel þótt þar sé augljóslega ekkert mannsandlit. Gott dæmi um þetta er broskarlinn :) sem er aðeins samsettur úr tveimur punktum og bognu striki.
Ótrúlega margir telja á hinn bóginn að um yfirnáttúrulegan og þar af leiðandi óútskýranlegan hlut sé að ræða. Reglulega berast okkur fréttir um að María mey hafi sést á ólíklegustu stöðum, t.d. á glugga, í trjám eða á brunabletti á samloku. Sama á við um son hennar Jesús krist! Hafa þau virkilega ekkert þarfara að gera? Fyrir nokkrum áratugum varð að breyta kanadískum dollaraseðlum vegna þess að andlit púka birtist óvart í hári Elísabetar Bretlandsdrottningar, rétt hjá vinstra eyra hennar.
![]() |
| María Mey eða bara Marge Simpson? |
eða hugsanlega:
![]() |
| Hómer Simpson? |
Mjög auðvelt er að sjá sambærilega hluti út úr fyrirbærum í geimnum. Forfeður okkar sáu mynstur í stjörnum næturhiminsins og nefndu þau eftir hetjum og skepnum sem fáir taka eftir í dag. Þegar sæfarendur upplýsingatímans sigldu suður á bóginn sáu þeir ný mynstur og nefndu þau eftir hlutum sem voru algengir á þeim tíma. Við köllum þessi handahófskenndu mynstur stjörnumerki.
Jesús í Arnarþokunni
Fólk sér andlit í skýjum hér á jörðinni, en það eru líka ský í geimnum. Slík ský eru venjulega úr gasi og ryki og ná yfir stór svæði. Úr þessum skýjum verða stjörnur til og í þeim finnast líka byggingarefni sem nauðsynleg eru lífi. Eitt þekktasta skýið af þessu tagi er Arnarþokan sem Hubblesjónaukinn myndaði árið 1995.
Myndin er glæsileg og vakti mikla athygli þegar hún birtist fyrst. Hún var t.d. sýnd á CNN og urðu forsvarsmenn stöðvarinnar agndofa yfir athyglinni sem hún fékk. Athyglin var þó ekki einungis vegna þess hve myndin er falleg, heldur taldi fólk sig sjá alls kyns skrítna hluti í skýinu, t.d. andlit Jesú Krists. Hér fyrir neðan eru tvær myndir af Arnarþokunni. Vinstri myndin er nærmynd af stjörnumyndunarsvæði í þokunni en sú hægri hefur aðeins verið löguð til og sýnir „andlit Jesú“.
![]() |
| Andlit Jesú Krists í fjarlægu gasskýi? |
Flestir sjá frekar óljósan svip en ef horft er vel og lengi í nokkurri fjarlægð frá myndinni, má með nokkrum vilja greina í henni mynd af Jesú eins og hann er gjarnan túlkaður á vestrænum listaverkum. Skýið hefur vitaskuld ekkert með Jesú að gera, enda aðeins stjörnuhreiður í 7000 ljósára fjarlægð. Jesús fæddist ekki fyrr en 5000 árum eftir að ljósið lagði af stað frá því! Þessi staðreynd hindrar samt ekki fólk í að biðja við þessa mynd og það sem meira er, myndirnar hér að ofan eru af vefsíðu sem segir þetta sýna „Andlit guðs“.
Enginn hefur nokkra hugmynd um hvernig Jesú leit út. Hefðbundnar myndir af honum sýna mann sem er afar vestrænn í útliti (hann er oft frekar hippalegur!) þótt hann hafi búið í Miðausturlöndum. Því er afar ólíklegt að hann hafi verið eins og listamenn vilja gjarnan túlka hann. Þar fyrir utan sjáum við miklu frekar andlitsdrætti fyrrum kanslara þriðja ríkisins á þessari mynd!
Heimildir:
Martin Gardner: The Great Stone Face and Other Nonmysteries
Phil Plait: Just Another Face in the Crowd
Robert Todd Carroll: Pareidolia. The Skeptics Dictionary.







