Atlantis við Hubble
13. maí 2009

Geimferjan Atlantis er nú tengd við Hubblesjónaukann og geimfarar eru í óða önn að undirbúa geimgöngurnar. Við skoðun komu í ljós rispur á hitahlíf geimferjunnar en þær ættu ekki að hafa nein áhrif á skipulag leiðangursins. Í kvöld bárust fréttir af því að um 10 cm brot úr kínverskum gervihnetti væri á leið framhjá geimferjunni en hún ætti að sleppa við árekstur.
Hér er frétt um geimskotið frá því á þriðjudaginn.
Þegar þetta er ritað eru liðnir rúmir tveir sólarhringar frá geimskotinu. Atlantis geimferjan er búin að tengjast við Hubble sjónaukann með sérstökum „geimkrana“. Litlar rispur hafa komið í ljós á hitahlíf geimferjunnar (mynd) sem ættu ekki að vera áhyggjuefni. Hafa verður í huga að ástandsskoðunin er orðin margfalt ítarlegri eftir að Columbia geimferjan sprakk þegar hún kom inn til lendingar í febrúar 2003. Geimferjan Endeavour er tilbúin á skotpalli í Flórída ásamt fjögurra manna áhöfn ef svo ólíklega vill til að senda þarf út björgunarleiðangur.
Áhöfn geimferjunnar hefur verið látin vita af broti úr Fengyun-1C veðurhnettinum sem Kínverjar sprengdu með flugskeyti árið 2007. Brotið er um 10 cm í þvermál en er í a.m.k. 2 km fjarlægð frá geimferjunni svo líkur á árekstri eru hverfandi og hefur áhöfnin fengið skipanir um að halda áfram við endurnýjun Hubble eins og ekkert hafi í skorist.Dagskrá næstu daga
![]() |
| Mynd af Kanadaarminum á geimskutlunni frá fyrri 1996. Smellið á myndina til þess að fá upp stærri mynd. Mynd: NASA |
Nú stendur yfir undirbúningur fyrir geimgöngurnar fimm. Mikilvægt er að huga vel að búningunum svo ekki sé nein hætta á slysi þegar geimfararnir fara út í lofttæmi geimsins.
Fimmtudagur 14. maí: Uppsetning víðsviðsmyndavélar III og stjórnbúnaðar (geimganga 1)
Föstudagur 15. maí: Gömlum rafhlöðum og miðunarbúnaði skipt út (geimganga2 )
Laugardagur 16. maí: Uppsetning á nýjum litrófsgreini og viðgerð á myndavél (geimganga 3)
Sunnudagur 17. maí: Viðgerð á gömlum litrófsgreini og ný klæðning breidd yfir hluta sjónaukans (geimganga 4)
Mánudagur 18. maí: Gömlum rafhlöðum og miðunarbúnaði skipt út, ný klæðning breidd yfir hluta sjónaukans (geimganga 5)
Geimkraninn
Myndin hér til hliðar sýnir geimkranann sem er framlag Kanadamanna við smíði geimferjunnar á 8. áratugnum. Kraninn sem gengur undir nafninu „Kanadaarmurinn“ gegnir lykilhlutverki í leiðangrinum til Hubble. Hann tengir geimferjuna við sjónaukann og geta geimfararnir klifrað eftir honum þegar þeir fara í geimgöngur. Kanadaarmurinn er einnig notaður við ástandsskoðun geimferjunnar og myndirnar af rispunum á geimferjunni voru teknar með myndavél fremst á honum. Armurinn er eins og risavaxinn 15 m langur handleggur með liðamót í öxl, olnboga og úlnlið og griparma á endanum (smellið á myndina til þess að stækka hana). Ekki er árennilegt að fara í sjómann við þennan 500 kg hvíta vélarm sem getur fært til 29 tonna hluti úti í geimnum. Hönnunin armsins miðast við þyngdarleysi því á jörðu niðri ráða mótorarnir ekki einu sinni við að lyfta upp arminum!
Geimfarar svífa í þyngdarleysi
Hér fyrir neðan er upptaka af vefsíðu NASA sem sýnir geimfarana að störfum í þyngdarleysi. Þeir lýsa upplifun sinni, fá sér að borða og lesa tölvupóst. Undirbúningur fyrir geimgöngurnar stendur. Hann felst meðal annars í því að skoða geimbúningana og athuga hvort loftklefinn sé ekki í lagi (en hann er eins konar „forstofa“ á leið út í ískaldan og loftlausan himingeiminn).Hér er mynd sem sýnir rispurnar á hitahlíf geimferjunnar sem mynduðust við að brak féll á hana við geimskotið á þriðjudaginn. Lengdin á slitrótta hvíta slóðanum er um 51 cm. Hitahlífin er samsett úr keramíkflísum og þarf að standast allt að 1650° C hita á leið inn í lofthjúp jarðar.
![]() |
Rispur á hitahlíf geimferjunnar. Hvíti slóðinn er um 51 cm að lengd. Mynd: NASA |
Fleiri greinar sem tengjast leiðangri Atlantis til Hubble sjónaukans:
Frétt um geimskotið frá því á þriðjudaginn. (11. maí)
Yfirlitsgrein um leiðangurinn um búnaðinn fyrir sjónaukann o.fl. (10. maí)
Keflavík varaflugvöllur fyrir geimferjuna. (10. maí)
Heimildir
- Canadaarm á vefsíðunni Wikipedia.
- Hubble Captured by Space Shuttle Crew. Frétt á vefnum Universetoday.com.
- Shuttle's Heat Shield Dings Appear to be Minor, NASA Says. Frétt á vefnum Space.com.
- Space Shuttle thermal protection system á vefsíðunni Wikipedia.
- STS-125 Press Kit af vef NASA.



