Frímerkjaútgáfa í tilefni af Alþjóðlegu ári stjörnufræðinnar

Athugaðu, opna í nýjum glugga. Prenta útSenda hlekk á þessa síðu til vinar

2. júní 2009

Í tilefni af Alþjóðlegu ári stjörnufræðinnar ákvað Post Europe, samtök póstfyrirtækja í Evrópu, að helga árið 2009 stjörnufræði. Tvö íslensk frímerki koma út af þessu tilefni. Þemað á frímerkinu með 105 kr. verðgildinu vísar til sólargangsmælinga Odds Helgasonar eða Stjörnu Odda um 1100. Þemað á frímerkinu með 140 kr. verðgildinu vísar hins vegar til stjörnuskoðunarturnsins á Lambhúsum á Álftanesi þar sem fyrstu opinberu stjörnuathuganirnar hérlendis voru gerðar á seinnihluta 18. aldar. Frímerkin hannaði Örn Smári Gíslason grafískur hönnuður.

 


 

Fleiri frímerki frá öðrum löndum má skoða á vef Stjörnufræðiársins.