Minnsta fjarreikistjarnan - sólkerfið Gliese 581
22. apríl 2009
Svissneskir stjörnufræðingar tilkynntu nýverið um minnstu fjarreikistjörnu sem fundist hefur hingað til. Fjarreikistjarnan, sem hlotið hefur nafnið Gliese 581 e, er talin um tvöfalt stærri en jörðin. Reikistjarnan fannst með stjarnmælingum, þ.e.a.s. stjörnufræðingar greindu þyngdaráhrifin sem reikistjarnan hefur á sólstjörnuna. Stjörnufræðingar birtu á sama tíma nýjar niðurstöður sem færa aðra reikistjörnu í kerfinu, Gliese 581 d, innan lífbeltisins. Sé reikistjarna innan lífbeltis sólstjörnur eru góðar líkur á að vatn geti haldist þar fljótandi. (ESOcast 6: Lightest Exoplanet Found).

