Sérkennilegar rákir á mynd frá Cassini

Athugaðu, opna í nýjum glugga. Prenta útSenda hlekk á þessa síðu til vinar

3. maí 2009

Þetta er hluti af mynd sem Cassini geimfarið tók af hringum Satúrnusar þann 8. apríl síðastliðinn. Breiða rákin hægra megin er skuggi tunglsins Mímasar en stjörnufræðingar eru ekki vissir um uppruna stuttu rákanna sem mynda eins konar borða meðfram dökka hringabeltinu.

Hringar Satúrnusar eru eitt af undrum sólkerfisins og meðal fallegustu fyrirbæra sem hægt er að skoða í litlum stjörnusjónauka. Það var Hollendingurinn Christiaan Huygens sem uppgötvaði hringana 1655-56 en það liðu tvær aldir uns Skotinn James Clerk Maxwell að þeir hlytu að vera samsettir úr ótal ögnum sem hver um sig væri á sporbraut um Satúrnus.

Þeirri tilgátu hefur verið varpað fram að litlu rákirnar séu skuggar frá ísbjörgum sem sveima rétt fyrir ofan meginhringflötinn. Það kemur heim og saman við þá staðreynd að halli hringanna gagnvart sólinni fer hratt minnkandi og því teygist á skuggum tungla og agna sem sveima um hringflötinn. Þann 4. september næstkomandi munu hringar Satúrnusar snúa á rönd séð frá jörðu en það gerist á um 15 ára fresti. Hringarnir eru þó það þunnir að þeir munu ekki sjást þann daginn. Þegar líður fram á næsta haust munum við aftur geta séð Satúrnus með hringa sína á stjörnuhimninum yfir Íslandi.

Smellið á myndina til þess að stækka hana. Mynd: NASA/JPL/Space Science Institute

Myndin birtist á vefsíðunni Stjörnufræðimynd dagsins (APOD) 15. apríl síðastliðinn. Við mælum heilshugar með þeirri vefsíðu!

- Sverrir Guðmundsson