Nýir geimfarar hjá ESA
5. júní 2009
![]() |
Það eru spennandi tímar framundan hjá verðandi geimförum. Mikill kraftur hefur verið settur í uppbyggingu Alþjóðlegu geimstöðvarinnar frá því að geimferjurnar fóru aftur á loft árið 2005, tveimur árum eftir Columbia slysið. Allar þeirra ferðir hafa snúist um geimstöðina, að undanskildum Hubble-leiðangrinum í síðasta mánuði.
![]() |
| Mynd sem geimferjan Atlantis tók af Alþjóðlegu geimstöðinni í mars 2009. Mynd: NASA |
Stefnt er að því að smíði Alþjóðlegu geimstöðvarinnar ljúki árið 2011 og að hún verði starfrækt að minnsta kosti til ársins 2015. Bandaríkjamenn ætla að leggja þeim þremur geimferjum sem eftir eru á næsta ári og þótt rússnesku Soyuz geimförin muni áfram geta flutt geimfara og vistir til geimstöðvarinnar þá burðargeta þeirra ekkert í líkingu við geimferjur Bandaríkjamanna. Því er nauðsynlegt að halda vel á spöðunum!
Fyrri ESA hópurinn valinn 1992
Hópurinn sem kynntur var til sögunnar er fyrsta evrópska holl geimfara frá árinu 1992. Þótt starf geimfarans sé mjög áhættusamt þá sóttust margir eftir því að komast í hóp hinna útvöldu. Voru geimfararnir sex valdir úr hópi 8.431 umsækjenda! Eins og gefur að skilja þurftu þeir meðal annars að standast sálfræðipróf, vera í góðu formi og sýna fram á kunnáttu hver á sínu sviði.
Hópinn skipa:
1. Samantha Cristoforetti, Ítalíu (32 ára orrustuflugmaður)
2. Alexander Gerst, Þýskalandi (33 ára jarðeðlisfræðingur)
3. Andreas Mogensen, Danmörku (32 ára flugverkfræðingur)
4. Luca Parmitano, Ítalíu (32 ára prófunarflugmaður)
5. Timothy Peake, Bretlandi (37 ára þyrluprófunarflugmaður)
6. Thomas Pesquet, Frakklandi (31 árs flugmaður og verkfræðingur)
Verður Íslendingur með í framtíðinni?
Athygli hefur vakið að einn geimfaranna, Timothy Peake, er breskur. Þótt Bretar séu aðili að ESA þá leggja þeir ekki fjármuni í mannaðar geimferðir heldur einbeita þeir sér að fjarstýrðum geimförum. Það er því alltaf möguleiki að Íslendingur verði í næsta hópi evrópsku geimferðastofnunarinnar (fyrstur Íslendinga út í geim var Bjarni Tryggvason sem er kanadískur ríkisborgari). Timothy Peake er fjórði breski geimfarinn en tveir af Bretunum flugu með NASA út í geim og tóku upp bandarískan ríkisborgararétt. Fjórði geimarinn í hópnum, efnafræðingurinn Helen Sharman, dvaldi í rússnesku geimstöðinni MIR 1989 í leiðangri sem var samvinnuverkefni Sovétríkjanna og hóps breskra fyrirtækja.
Myndarskapur hjá Ítölum
Einnig er athyglisvert að tveir af sex nýjum geimförum eru af ítölsku bergi brotnir. Það er engin tilviljun því framundan eru ýmis alþjóðleg verkefni þar sem Ítalir munu leggja heilmikið af mörkum, bæði sem aðilar að ESA og sem sjálfstæður aðili. Ítalir standa sig vel í geimkönnun og reka öfluga geimrannsóknarstofnun (A.S.I. - Agenzia Spaziale Italiana). Hún tekur þátt í náinni samvinnu við ESA og þótti skynsamlegt hafa einn sameiginlegan hóp evrópskra geimfara. Agenzia Spaziale Italiana er þriðji aðilinn að Cassini-Huygens leiðangrinum (ásamt ESA og NASA) og lagði til aðalloftnet Cassini-geimfarsins sem hefur sent stórfenglegar myndir af ferðum sínum umhverfis Satúrnus og tungl hans frá árinu 2004.
![]() |
Geimfararnir sem ESA kynnti til sögunnar um daginn. Frá vinstri: Luca Parmitano, Alexander Gerst, Andreas Mogensen, Samantha Cristoforetti, Timothy Peake og Thomas Pesquet. Mynd: ESA |
Heimildir:
Frétt um val á nýjum geimförum á vefsíðu Evrópsku geimferðastofnunarinnar (20/5/2009)
ESA á vefsíðunni Wikiepdia
Expedition 20 á vefsíðunni Wikiepdia
International Space Station á vefsíðunni Wikipedia.
Space Shuttle á vefsíðunni Wikipedia
Frétt um breska geimfarann á vef Guardian (20/5/2009)
Frétt um val á evrópsku geimförunum á vef U.S. News (20/5/2009)
- Sverrir Guðmundsson




