Kaguya geimfarið klessir á tunglið

Athugaðu, opna í nýjum glugga. Prenta útSenda hlekk á þessa síðu til vinar

10. júní 2009

Í dag klukkan 18:30 batt japanska geimfarið Kaguya endi á tveggja ára langan rannsóknarleiðangur sinn um tunglið. Geimfarið rakst á suðurhvel tunglsins. Stjörnuáhugamenn í Asíu og Ástralíu geta fylgst með árekstrinum og munu vonandi gera það. Náist einhverjar myndir af atburðinum munum við birta þær hér á Stjörnufræðivefnum á morgun. Á meðan látum við okkur nægja að njóta tunglsins í háskerpu, en um borð í Kaguya voru fyrstu háskerpumyndavélarnar sem sendar hafa verið til tunglsins.