![]() | M30 - Kúluþyrping í Steingeitinni |
![]() |
| Kort af Steingeitinni. Smellið á myndina til þess að fá upp stærra kort. |
M30 (NGC 7099) er kúluþyrping í Steingeitinni. Charles Messier uppgötvaði þyrpinguna og færði hana inn í skrá sína þann 3. ágúst 1764. Hann lýsti þyrpingunni sem „ávalri þoku án stjarna“ en stjörnufræðingurinn William Herschel sem fyrstur greindi í sundur stjörnur í þyrpingunni í kringum 1784.
Kúluþyrpingin Messier 30 er í um 26 þúsund ljósára fjarlægð frá sólu sem er hér um bil sama fjarlægð og er til miðju Vetrarbrautarinnar. Þyrpingin er um 90 ljósár í þvermál og hornstærðin er um 12 bogamínútur. Sýndarbirtustig hennar er +7,2 en björtustu rauðu risarnir í kúluþyrpingunni eru með birtustig í kringum +12.
Kúluþyrpingin M30 á stjörnuhimninum
M30 sést á himninum um 3° austan við stjörnuna ζ (zeta) í Steingeitinni. Birtustig hennar er +7,2 sem þýðir að hún sést einungis í handkíki eða stjörnusjónauka. Við það bætist að hún kemst einungis rétt yfir sjóndeildarhringinn hér á landi (mest 2,5° í Reykjavík sem þýðir að hún sést ekki á Norðurlandi vegna deyfingar ljóssins á leið sinni í gegnum lofthjúpinn). M30 lendir yfirleitt aftast á lista yfir Messierfyrirbærin í svonefndu Messier-maraþoni þar sem kappsamir áhugamenn (í útlöndum) reyna að sjá öll fyrirbæri Messier-skrárinnar á einni nóttu. Hún hefur því að ósekju slæmt orð á sér þar sem oft er orðið of bjart af degi til þess að skoða hana þyrpinguna.
![]() |
| Staðsetning kúluþyrpingarinnar M30 í Steingeitinni. |
Heimildir:
- Snævarr Guðmundsson. 2004. Íslenskur stjörnuatlas. Mál og menning, Reykjavík.
- Vefsíðan seds.org um djúpfyrirbær (skoðuð 22. júlí 2008).



