Athugaðu, opna í nýjum glugga. Prenta útSenda hlekk á þessa síðu til vinar

Portía

Fylgitungl Úranusar

Portía er sjöunda innsta þekkta tungl Úranusar. Braut þess liggur í aðeins 66.097 km fjarlægð frá Úranusi. Tunglið fann stjörnufræðingurinn Stephen Synnott á myndum Voyagers 2 sem teknar voru 3. janúar 1986 og hlaut þá tímabundna heitið S/1986 U1. Portía er nefnd eftir kvenhetjunni í leikritinu Kaupmaðurinn í Feneyjum eftir William Shakespeare.

Portía er stærsta tunglið í Portía-tunglhópnum sem inniheldur tunglin Bíönku, Kressídu, Desdemónu, Júlíu, Rósalind, Kúpid, Belindu og Perdítu.. Öll þessi tungl eru á svipuðum brautum, eru álíka stór og dauf. Portía er fremur smávaxið tungl, aðeins um 135 km í þvermál og endurvarpar aðeins um 7-8% af sólarljósinu sem fellur á það. Það er því mjög dökkt. Sýndarbirtustig tunglsins er aðeins +19,6 og er svo smátt að það sést vart í stærstu stjörnusjónaukum jarðar. Á myndum Voyagers 2 virðist Portía ílangt fyrirbæri og yfirborðið gráleitt. Mjög lítið annað er vitað um það.

Tölulegar upplýsingar

Meðalfjarlægð frá miðju Úranusar: 66.097 km
Umferðartími um Úranus:0,5 jarðdagar
Snúningstími: Bundinn möndulsnúningur
Þvermál:
135 km
Massi:
~1,7 x 1018 kg
Eðlismassi:
1,3 g/cm3
Þyngdarhröðun:
0,023 m/s2
Lausnarhraði:~0,058 km/s
Meðalhitastig yfirborðs:
-218°C
Endurskinshlutfall:
0,08
Uppgötvað af Stephen Synnott
Uppgötvað árið
3. janúar 1986

Heimildir: