Athugaðu, opna í nýjum glugga. Prenta útSenda hlekk á þessa síðu til vinar

Rósalind

Fylgitungl Úranusar

Rósalind er áttunda innsta þekkta tungl Úranusar. Braut þess liggur í aðeins 69.926 km fjarlægð frá Úranusi. Tunglið fann stjörnufræðingurinn Stephen Synnott á myndum Voyagers 2 sem teknar voru 13. janúar 1986 og hlaut þá tímabundna heitið S/1986 U4. Rósalind er nefnd eftir dóttur eldri hertogans í leikritinu Sem yður þóknast eftir William Shakespeare.

Rósalind tilheyrir Portía-tunglhópnum sem inniheldur einnig tunglin Bíönku, Kressídu, Desdemónu, Júlíu, Portíu, Kúpid, Belindu og Perdítu.. Öll þessi tungl eru á svipuðum brautum, eru álíka stór og dauf. Rósalind er afar smávaxið tungl, aðeins um 72 km í þvermál og endurvarpar aðeins um 7-8% af sólarljósinu sem fellur á það. Það er því mjög dökkt. Sýndarbirtustig tunglsins er aðeins +21,3 og er svo smátt að það sést aðeins í stærstu stjörnusjónaukum jarðar. Á myndum Voyagers 2 virðist Rósalind ílangt fyrirbæri og yfirborðið gráleitt. Mjög lítið annað er vitað um það.

Tölulegar upplýsingar

Meðalfjarlægð frá miðju Úranusar: 69.926 km
Umferðartími um Úranus:0,6 jarðdagar
Snúningstími: Bundinn möndulsnúningur
Þvermál:
72 km
Massi:
~2,5 x 1017 kg
Eðlismassi:
1,3 g/cm3
Þyngdarhröðun:
0,012 m/s2
Lausnarhraði:~0,031 km/s
Meðalhitastig yfirborðs:
-218°C
Endurskinshlutfall:
0,08
Uppgötvað af Stephen Synnott
Uppgötvað árið
13. janúar 1986

Heimildir: