Athugaðu, opna í nýjum glugga. Prenta útSenda hlekk á þessa síðu til vinar

Kúpid

Fylgitungl Úranusar

Kúpid er níunda innsta þekkta tungl Úranusar. Braut þess liggur í aðeins 74.800 km fjarlægð frá Úranusi. Tunglið fundu stjörnufræðingarnir Mark Showalter og Jack Lissauer á myndum Hubblessjónaukans sem teknar voru 25. ágúst 2003 og hlaut þá tímabundna heitið S/2003 U2. Kúpid er nefnd eftir persónu úr leikritinu Tímon frá Aþenu eftir William Shakespeare.

Kúpid er smæsta tunglið í Portía-tunglhópnum sem inniheldur einnig tunglin Bíönku, Kressídu, Desdemónu, Júlíu, Portíu, Rósalind, Belindu og Perdítu. Öll þessi tungl eru á svipuðum brautum, eru álíka stór og dauf. Rósalind er afar smávaxið tungl, aðeins um 10 km í þvermál og endurvarpar aðeins um 7-8% af sólarljósinu sem fellur á það. Það er því mjög dökkt og sást raunar ekki á myndum Voyagers 2 þegar geimfarið flaug framhjá Úranusi árið 1986. Sýndarbirtustig tunglsins er aðeins +26 og er svo smátt að það sést aðeins í stærstu stjörnusjónaukum jarðar. Mjög lítið annað er vitað um það.

Tölulegar upplýsingar

Meðalfjarlægð frá miðju Úranusar: 74.800 km
Umferðartími um Úranus:0,6 jarðdagar
Snúningstími: Bundinn möndulsnúningur
Þvermál:
10 km
Massi:
~3,8 x 1015 kg
Eðlismassi:
1,3 g/cm3
Þyngdarhröðun:
0,0031 m/s2
Lausnarhraði:~0,0076 km/s
Meðalhitastig yfirborðs:
-218°C
Endurskinshlutfall:
0,08
Uppgötvað af Mark Showalter og Jack Lissauer
Uppgötvað árið
25. ágúst 2003

Heimildir: