PerdítaFylgitungl Úranusar |
Perdíta er tíunda innsta þekkta tungl Úranusar. Braut þess liggur í aðeins 76.500 km fjarlægð frá Úranusi. Tunglið fann stjörnufræðingurinn Erich Karkoschka þann 18. maí 1999 á myndum sem Voyager 2 tók 18. janúar 1986. Engar aðrar myndir gátu staðfest þessa uppgötvun Karkoschka fyrr en það sást á myndum sem Hubblessjónaukinn tók árið 2003. Eftir uppgötvun Karkoschkas árið 1999 hlaut tunglið tímabundna heitið S/1986 U10. Perdíta er nefnd eftir dóttur Leontes og Hermíónu í leikritinu Vetrarævintýri eftir William Shakespeare.
Perdíta er ysta tunglið sem tilheyrir Portía-tunglhópnum sem inniheldur einnig tunglin Bíönku, Kressídu, Desdemónu, Júlíu, Portíu, Rósalind, Kúpid og Belindu. Öll þessi tungl eru á svipuðum brautum, eru álíka stór og dauf. Perdíta er afar smávaxið tungl, aðeins um 20 km í þvermál og endurvarpar aðeins um 7-8% af sólarljósinu sem fellur á það. Það er því mjög dökkt. Sýndarbirtustig tunglsins er aðeins +24 og er svo smátt að það sést aðeins í stærstu stjörnusjónaukum jarðar. Á myndum Voyagers 2 virðist Rósalind ílangt fyrirbæri og yfirborðið gráleitt. Mjög lítið annað er vitað um það.
Tölulegar upplýsingar
| Meðalfjarlægð frá miðju Úranusar: | 76.500 km |
| Umferðartími um Úranus: | 0,6 jarðdagar |
| Snúningstími: | Bundinn möndulsnúningur |
| Þvermál: | 20 km |
| Massi: | ~1,8x 1016 kg |
| Eðlismassi: | 1,3 g/cm3 |
| Þyngdarhröðun: | 0,0047 m/s2 |
| Lausnarhraði: | ~0,011 km/s |
| Meðalhitastig yfirborðs: | -218°C |
| Endurskinshlutfall: | 0,08 |
| Uppgötvað af | Erich Karkoschka |
| Uppgötvað árið | 18. maí 1999 |

