Athugaðu, opna í nýjum glugga. Prenta útSenda hlekk á þessa síðu til vinar

Setebos

Fylgitungl Úranusar

Setebos er tuttugasta og sjötta þekkta tungl Úranusar og þriðja innsta óreglulega tunglið við reikistjörnuna. Tunglið er í 17.418.000 km fjarlægð frá Úranusi. Tunglið fundu stjörnufræðingarnir Brett Gladman, Matthew Holman, Jean-Marc Petit, John Kavelaars og Hans Scholl í júlí árið 1999 á myndum sem teknar voru með fransk-kanadíska stjörnusjónaukanum á Mauna Kea á Hawaii. Fékk þá tunglið tímabundna heitið S/1999 U1 en var síðar nefnt eftir guðinum Setebos sem Kalíban og Sýkórax dýrkuðu í leikritinu Ofviðrið eftir William Shakespeare.

Tunglið er fremur smátt, aðeins um 47 km í þvermál og endurvarpar um 4% af sólarljósinu sem fellur á það. Sýndarbirtustig er +23,3 svo það sést ekki nema í stærstu stjörnusjónaukum jarðar.

Tölulegar upplýsingar

Meðalfjarlægð frá miðju Úranusar: 17.418.000 km
Umferðartími um Úranus:2228 jarðdagar
Snúningstími: Óþekktur
Þvermál:
32 km
Massi:
~7,5 x 1016 kg
Eðlismassi:
1,3 g/cm3
Þyngdarhröðun:
0,0063 m/s2
Lausnarhraði:~0,0204 km/s
Meðalhitastig yfirborðs:
-218°C
Endurskinshlutfall:
0,4
Uppgötvað af Gladman o.fl.
Uppgötvað árið
1999

Heimildir: