

ProsperóFylgitungl Úranusar |
Prosperó er tuttugasta og fimmta þekkta tungl Úranusar og þriðja innsta óreglulega tunglið við reikistjörnuna. Tunglið er í 16.256.000 km fjarlægð frá Úranusi. Tunglið fundu stjörnufræðingarnir Brett Gladman, Matthew Holman, Jean-Marc Petit, John Kavelaars og Hans Scholl í júlí árið 1999 á myndum sem teknar voru með fransk-kanadíska stjörnusjónaukanum á Mauna Kea á Hawaii. Fékk þá tunglið tímabundna heitið S/1999 U3 en var síðar nefnt eftir galdramanninum Prosperó úr leikritinu Ofviðrið eftir William Shakespeare.
Tunglið er fremur smátt, aðeins um 50 km í þvermál og endurvarpar um 4% af sólarljósinu sem fellur á það. Sýndarbirtustig er +23,2 svo það sést ekki nema í stærstu stjörnusjónaukum jarðar.
Tölulegar upplýsingar
| Meðalfjarlægð frá miðju Úranusar: | 16.256.000 km |
| Umferðartími um Úranus: | 1978 jarðdagar |
| Snúningstími: | Óþekktur
|
Þvermál:
| 50 km
|
Massi:
| ~8,5 x 1016 kg
|
Eðlismassi:
| 1,3 g/cm3
|
Þyngdarhröðun:
| 0,0063 m/s2 |
| Lausnarhraði: | ~0,021 km/s
|
Meðalhitastig yfirborðs:
| -218°C |
Endurskinshlutfall:
| 0,4 |
| Uppgötvað af | Gladman o.fl. |
Uppgötvað árið
| 1999 |
Heimildir: