

SýkóraxFylgitungl Úranusar |
Sýkórax er tuttugasta og þriðja þekkta tungl Úranusar og stærsta óreglulega tungl reikistjörnunnar. Tunglið er í 12.179.000 km fjarlægð frá Úranusi. Tunglið fundu stjörnufræðingarnir Brett Gladman, Philip Nicholson, Joseph Burns og John Kavelaars árið 1997 á myndum sem teknar voru með Hale-sjónaukanum á Wilson-fjalli í Kaliforníu. Fékk þá tunglið tímabundna heitið S/1997 U2 en var síðar nefnt eftir Sýkórax, móður Kalíban úr leikritinu Ofviðrið eftir William Shakespeare.
Tunglið er fremur smátt, aðeins um 72 km í þvermál og endurvarpar um 4% af sólarljósinu sem fellur á það. Sýndarbirtustig er +20,8 svo það sést ekki nema í stærstu stjörnusjónaukum jarðar.
Tölulegar upplýsingar
| Meðalfjarlægð frá miðju Úranusar: | 12.179.000 km |
| Umferðartími um Úranus: | 1286 jarðdagar |
| Snúningstími: | Óþekktur
|
Þvermál:
| 150 km
|
Massi:
| ~2,3 x 1018 kg
|
Eðlismassi:
| 1,3 g/cm3
|
Þyngdarhröðun:
| 0,04 m/s2 |
| Lausnarhraði: | ~0,064 km/s
|
Meðalhitastig yfirborðs:
| -218°C |
Endurskinshlutfall:
| 0,4 |
| Uppgötvað af | Gladman o.fl. |
Uppgötvað árið
| 1997 |
Heimildir: