

FerdínandFylgitungl Úranusar |
Ferdínand er tuttugasta og sjöunda þekkta tungl Úranusar og ysta tungl reikistjörnunnar. Tunglið er í 20.901.000 km fjarlægð frá Úranusi. Tunglið fundu stjörnufræðingarnir Matthew Holman, John Kavelaars og Dan Milisavljevic í ágúst árið 2001 á myndum sem teknar voru með fransk-kanadíska stjörnusjónaukanum á Mauna Kea á Hawaii. Fékk þá tunglið tímabundna heitið S/2001 U2 en var síðar nefnt eftir Ferdínand syni Napólíkonungs úr leikritinu Ofviðrið eftir William Shakespeare.
Tunglið er fremur smátt, aðeins um 21 km í þvermál og endurvarpar um 4% af sólarljósinu sem fellur á það. Sýndarbirtustig er +25,1 svo það sést ekki nema í stærstu stjörnusjónaukum jarðar.
Tölulegar upplýsingar
| Meðalfjarlægð frá miðju Úranusar: | 20.901.000 km |
| Umferðartími um Úranus: | 2792 jarðdagar |
| Snúningstími: | Óþekktur
|
Þvermál:
| 21 km
|
Massi:
| ~5,4 x 1015 kg
|
Eðlismassi:
| 1,3 g/cm3
|
Þyngdarhröðun:
| 0,0025 m/s2 |
| Lausnarhraði: | ~0,0085 km/s
|
Meðalhitastig yfirborðs:
| -218°C |
Endurskinshlutfall:
| 0,4 |
| Uppgötvað af | Holman o.fl. |
Uppgötvað árið
| 2001 |
Heimildir: