Athugaðu, opna í nýjum glugga. Prenta útSenda hlekk á þessa síðu til vinar

Biblis Patera

Biblis Patera er eitt tveggja eldfjalla á miðju Þarsisbungunnar á Mars. Fjallið er staðsett nánast hálfa leið milli Ólympusfjalls og Þarisfjallanna þriggja. Biblis Patera er næstum 170 km langt og meira en 100 km breitt. Tindur þess rís um 3 km upp úr meðalhæð yfirborðsins og á tindinum er 53 km breið og 4,5 km djúp askja. Útlit öskjunnar bendir til þess að hún hafi fallið nokkrum sinnum saman. Fjallið er líklega milli 2 og 2,8 milljarða ára gamalt en umhverfis það eru aðrir umtalsvert yngri hraunstraumar sem eiga rætur að rekja til Pavonisfjalls í austri.

Kort

Hæðakort MOLA í Mars Global Surveyor af Þarsisbungunni.

Myndir

Þessa mynd tók Mars Express geimfarið af öskju Biblis Patera. Útlit öskjunnar bendir til þess að hún hafi hrunið nokkrum sinnum. Sprungurnar eða sigdældirnar í öskjunni hafa líklega myndast við landris Þarsis.

Heimildir:

  1. The Biblis Patera volcano. ESA. Sótt 09.06.08.