Athugaðu, opna í nýjum glugga. Prenta útSenda hlekk á þessa síðu til vinar

 

Maxwellfjöll

Maxwellfjöll (Maxwell Montes) er hæsti fjallgarður Venusar, ríflega 11 km hár. Fjallgarðurinn er á norðurhluta Ishtar Terra hálendissvæðisins á norðurhveli Venusar.

Maxwellfjöll eru nefnd eftir skoska eðlisfræðingnum James Clerk Maxwell og er ásamt Alfa og Beta Regio einu kennileiti Venusar sem ekki eru nefnd eftir gyðjum og konum.