Athugaðu, opna í nýjum glugga. Prenta útSenda hlekk á þessa síðu til vinar

 

Afródíta Terra

Afródíta Terra er stærra af tveimur meginhálendissvæðum á Venusi, skammt sunnan miðbaugs nánar til tekið. Svæðið er rúmir 10.000 km í þvermál eða á stærð við meginland Afríku og því nokkuð stærra en Ishtar Terra. Afródíta Terra er talsvert stórskornara og sprungnara en Ishtar Terra þótt þar séu ekki eins háir fjallgarðar. Svæðið er nefnt eftir grísku ástargyðjunni.

Afródíta Terra er mjög brotið og sprungið sem bendir til þess að einhverjar skorpuhreyfingar hafi átt sér stað. Á austurhluta svæðisins er risasigdældin Dali Chasma og þar í kring nokkrar stórar kórónur og önnur eldfjöll. Hæsta eldfjallið er Maatfjall sem rís næstum níu km upp úr sléttunni í kring.

Sjá nánar: Jarðfræði Venusar
Sjá nánar: Eldvirkni á Venusi