Dyngja er eldfjall með mjög aflíðandi hlíðar sem myndast hefur við langvinn en róleg flæðigos. Dyngjur eru venjulega úr basalti. Litlar dyngjur myndast oft í einu stöðugu gosi en stórar dyngjur gætu hafa myndast við hundruð eða þúsundir eldgosa. Hlíðarhalli dyngja er mjög líitill og tindar þeirra eru næstum flatar öskjur.

