Keflavík varaflugvöllur fyrir geimferjuna

Athugaðu, opna í nýjum glugga. Prenta útSenda hlekk á þessa síðu til vinar

10. maí 2009

Stjarnvísindamenn og áhugafólk um allan heim bíður með öndina í hálsinum eftir för Atlantisgeimferjunnar til Hubblesjónaukans. Ef eitthvað óvænt kemur í ljós eftir flugtak er mögulegt að lenda geimferjunni á nokkrum varaflugvöllum. Keflavík var í þessum hópi en við vitum ekki hvort það hafi breyst við brotthvarf bandaríska hersins 2006.

Hér er svo stærra kort yfir varaflugvelli geimferjunnar í Evrópu og norðurhluta Afríku. Nú er bara að bíða og vona að geimskotið gangi áfallalaust fyrir sig!


Varaflugvellr fyrir geimferjur Bandaríkjamanna í Evrópu og norðurhluta Afríku. Mynd af vefsíðunni space.balettie.com.

Byggt á upplýsingum frá síðunum space.balettie.com og aerospaceweb.org.