Lunar Reconnaissance Orbiter búið undir geimskot

Athugaðu, opna í nýjum glugga. Prenta útSenda hlekk á þessa síðu til vinar

12. júní 2009

Verkfræðingar NASA undirbúa nú Lunar Reconnaissance Orbiter (LRO) og Lunar CRater Observation and Sensing Spacecraft (LCROSS) geimförin fyrir ferðalag til tunglsins. Báðum geimförum verður skotið saman á loft fimmtudaginn 18. júní næstkomandi klukkan 21:12 að íslenskum tíma með Atlas V eldflaug frá Flórída. LRO er ætlað að hringsóla umhverfis tunglið, kortleggja yfirborðið mjög nákvæmlega og rannsaka hugsanlega tilvist vatnsís í skyggðum gígum við pólsvæði tunglsins. LCROSS er aftur á móti árekstrarfar sem ætlað er að rekast á tunglið í þeirri von að grafa upp vísbendingar um vatnsís við suðurpól tunglsins. Leiðangur LRO og LCROSS er fyrsti hlutinn af Vision for Space Exploration áætlun NASA.

Markmið Lunar Reconnaissance Orbiter er að kortleggja yfirborðið í hárri upplausn, útbúa þrívítt hæðarkort, mæla geislun við yfirborðið og kanna hugsanlegar auðlindir (sér í lagi ís) sem kunna að leynast á tunglinu. Síðast en ekki síst er markmiðið að finna mögulega lendingarstaði fyrir mannaða tunglleiðangra í framtíðinni. Um borð í LRO er öflugasta myndavél sem send hefur verið til tunglsins hingað til. Upplausn hennar er nægileg til þess að greina lendingarstaði Apollo leiðangrana og þau tæki sem geimfarnarnir skildu eftir fyrir fjörutíu árum.

Markmið Lunar CRater Observation and Sensing Satellite (LCROSS), er að beina tveggja tonna skeyti (sem er á stærð við stóran jeppa eins og Land Cruiser) ofan í gíg við suðurpól tunglsins. Skeytið er í raun efsta stig Atlas V eldflaugarinnar sem kom LRO og LCROSS út í geiminn til að byrja með. Skeytið mun rekast á tunglið á yfir 9000 km hraða á klukkustund (tvöfaldur hraði byssukúlu). LCROSS mun fljúga inn í gas- og rykstrókinn sem verður til við áreksturinn og mæla eiginleika hans áður en það rekst sjálft á yfirborðið skömmu síðar. Áætlað er að áreksturinn verði fimmtudagsmorguninn 8. október kl. 10:30 að íslenskum tíma. Tunglið er þá á vesturhimni yfir Íslandi.