Jörðin úr geimnum: Sarychev eldfjallið á Kúrileyjum
22. júní 2009

Geimfarar um borð í Alþjóðlegu geimstöðinni hafa stórkostlega yfirsýn yfir jörðina. Stundum verða þeir vitni að því þegar jörðin byrstir sig. Þessa ljósmynd tók einn geimfarinn af Sarychev eldfjallinu á Matuaeyju, sem er ein Kúrileyja, norðan Japans, þann 12. júní síðstaliðinn þegar gos hófst í fjallinu. Á þessari glæsilegu mynd sést gosstrókurinn rísa hátt upp í lofthjúpinn. Hann virðist blanda af brúnni ösku og ljósleitri gufu. Ofan á gosstróknum er hvítt ský sem myndaðist þegar loftmassinn reis hratt, kólnaði og þéttist. Brennheitt gjóskuflóð flæðir niður hlíðar fjallsins og tortímir öllu sem á vegi þess verður. Íbúar Pompeii fengu að kenna á eyðileggingarmætti slíks flóðs árið 79. Kannski hefur Vesúvíus litið einhvern veginn svona út þann örlagaríka ágústdag.

Hér má sjá þegar myndunum hefur verið skeytt saman.


Jörðin er stórkostleg reikistjarna.
Myndin var tekin með Nikon D2xs myndavél og 400 mm linsu.

