Fyrstu myndirnar frá Lunar Reconnaissance Orbiter
3. júlí 2009

Lunar Reconnaissance Orbiter var skotið á loft fimmutdaginn 18. júní síðastliðinn og komst á braut um tunglið aðeins fjórum og hálfum degi síðar. Gervitunglið hringsólar um pólsvæði tunglsins í aðeins 50 km hæð. Um borð í LRO er öflugasta myndavél sem send hefur verið til tunglsins, LROC, og var kveikt á henni þann 30. júní. Skömmu síðar tók gervitunglið fyrstu ljósmyndir sínar af yfirborði tunglsins. Myndirnar voru teknar við skuggaskil tunglsins, á mörkum dags og nætur, og virðast því kennileiti yfirborðsins óvenju ýkt. Svæðið er á tunglhálendinu, sunnan Mare Nubium eða Skýjahafinu. Myndirnar eru stórglæsilegar og gefa okkur góða hugmynd um getu LROC. Nú hlökkum við bara til að fá ljósmyndir af lendingarstöðum Apollo leiðangranna. Ég get ekki beðið!



