LRO ljósmyndar lendingarstaði Apollo leiðangranna

Athugaðu, opna í nýjum glugga. Prenta útSenda hlekk á þessa síðu til vinar

18. júlí 2009

Lendingarstaður Apollo 14 séð með Lunar Reconnaissance Orbiter

Vísindamenn hafa birt ljósmyndir Lunar Reconnaissance Orbiter af lendingarstöðum fimm Apollo leiðangra. Myndirnar eru birtar í tilefni af fjörutíu ára afmæli fyrstu tungllendingarinnar. Á myndunum sjást neðri stig tunglferjanna varpa löngum skugga á yfirborði tunglsins. Besta ljósmyndin er af lendingarstað Apollo 14. Þar voru lýsingaraðstæður sérlega heppilegar sem gerðu kleyft að sjá mun meiri smáatriði þar en annars staðar. Á myndinni sést Apollo Lunar Surface Experiment Package sem er vísindatækjapakki sem geimfararnir skildu eftir á lendingarstöðunum. Sjá má slóðina eftir fótspor geimfaranna milli tunglferjunnar og vísindatækjanna. 

LRO náði að ljósmynda fimm af sex lendingarstöðum Apollo leiðangranna. Lendingarstaður Apollo 12 verður ljósmyndaður á næstu vikum þegar lýsingin yfir lendingarstaðnum verður heppileg. Geimfarið er á sporöskjulaga braut umhversi tunglið og því eru myndirnar teknar í mismunandi hæð, en upplausnin er engu að síður keimlík í öllum tilvikum. Sólin var lágt á lofti yfir lendingarstöðunum þegar myndirnar voru teknar og varpa þess vegna hárreistir hlutir á yfirborðinu löngum skuggum. Tunglferjurnar rísa um þrjá metra upp úr yfirborðinu og varpa þar af leiðandi mjög löngum og augljósum skuggum.

Tunglferja Apollo 17 tekst á loft frá tunglinu

Þetta er smjörþefurinn af því sem koma skal. Í september verður LRO kominn á lægri braut umhverfis tunglið og gefst þá færi á að ná myndum með tvisvar til þrisvar sinnum betri upplausn.

Lendingarstaður Apollo 11 á Kyrrðarhafinu
Lendingarstaður Apollo 15 í Hadley Rille
Lendingarstaður Apollo 11 á Kyrrðarhafinu Lendingarstaður Apollo 15 í Hadley Rille
  
Apollo 16 í Descartes hálendinuLendingarstaður Apollo 17 í Taurus-Littrow dalnum
Lendingarstaður Apollo 16 á Descartes hálendinu Lendingarstaður Apollo 17 í Taurus-Littrow dalnum

- Sævar Helgi Bragason