Árekstur við Júpíter!

Athugaðu, opna í nýjum glugga. Prenta útSenda hlekk á þessa síðu til vinar

20. júlí 2009

Fingraför áreksturs fyrirbæris við Júpíter á innrauðri ljósmynd sem tekin var 20. júlí

Þann 19. júlí uppgötvaði ástralski stjörnuáhugamaðurinn Anthony Wesley nýjan dökkan blett á suðurhveli Júpíters. Bletturinn líkist mjög þeim blettum sem halastjarnan Shoemaker-Levy 9 skildi eftir sig er hún rakst á Júpíter árið 1994. Í gær (20. júlí) sýndu svo stjörnufræðingar fram á að um árkestur hafi verið að ræða. Eitthvað virðist hafa rekist á Júpíter, fimmtán árum eftir árekstur Shoemaker-Levy 9.

Wesley hóf að ljósmynda Júpíter klukkan 13:00 að íslenskum tíma frá heimili sínu í Ástralíu þann 19. júlí með heimasmíðuðum 14,5 tommu spegilssjónauka. Fljótlega eftir að fyrstu myndirnar birtust á tölvuskjánum tók Wesley eftir dökkum blett sem hann hafði ekki séð áður. Í fyrstu taldi hann að um einfalt veðrabrigði væri að ræða en efaðist um leið og betri myndir bárust. Hann sá að bletturinn var kolsvartur og mjög líkur þeim blettum sem halastjarnan Shoemaker-Levy 9 skildi eftir sig þegar hún rakst á Júpíter fyrir 15 árum síðan. Um leið og Wesley áttaði sig á mikilvægi þessa bletts lét hann aðra áhugamenn og stjörnufræðinga vita af honum.


Myndin sem Anthony Wesley tók af Júpíter sem sýndi nýjan dökkan blett á Júpíter. Suður snýr upp. Athuganir stjörnufræðinga staðfestu að um árekstur hafi verið að ræða.

Í gær, 20. júlí, beindi NASA innrauðum stjörnusjónauka sínum á Mauna Kea á Hawaii á Júpíter í leit að ummerkjum um áreksturinn. Á innrauðu ljósmyndunum er bletturinn bjartur sem eru augljós merki um efni úr árekstrinum (leifarnar) sem svífa um efst í lofthjúpi Júpíters. Efnið hefur kastast upp við sprenginguna sem fylgdi í kjölfar árekstursins, þar sem það endurvarpar sólarljósinu. Þetta eru fingraför árekstursins, hin sömu og sáust þegar Shoemaker-Levy 9 rakst á Júpíter árið 1995.

Enn er margt á huldu varðandi áreksturinn, en ljóst er að gögnum verður safnað næstu daga. Þá ætti vonandi að koma í ljós hvers konar fyrirbæri það var sem rakst á Júpíter.

Innrauð ljósmynd Keck sjónaukans á Mauna Kea á Hawaii. Stærð jarðar í samanburði. Mynd: Paul Kalas (UCB), Michael Fitzgerald (LLNL/UCB), Franck Marchis (SETI Institute/UCB), James Graham (UCB)
Árekstrarbletturinn á suðurhveli Júpíters. Myndin var tekin 20. júlí 2009 með innrauða sjónauka NASA á Mauna Kea á Hawaii og staðfesti að um árekstur hafi verið að ræða.

Heimildir

  1. Impact Mark on Jupiter, 19th July 2009. Heimasíða Anthony Wesley.
  2. New NASA Images Indicate Object Hits Jupiter. Fréttatilkynning frá JPL.
- Sævar Helgi Bragason