"Hún snýst nú samt" á RÚV þriðjudagskvöldið 8. september kl. 21:00

Athugaðu, opna í nýjum glugga. Prenta útSenda hlekk á þessa síðu til vinar

5. september 2009

Þriðjudagsvköldið 8. september klukkan 21:00 sýnir Ríkissjónvarpið heimildamyndina Hún snýst nú samt eða Den bevægede Jord eins og hún heitir á frummálinu. Í þessari dönsku heimildamynd, sem RÚV framleiðir meðal annara, er sögð sagan af stórkostlegri byltingu í stjörnufræði sem átti sér stað í Evrópu á endurreisnartímanum.

Árið 1543 hélt Nikolaj Kopernikus því fram að jörðin væri reikistjarna á sporbraut um sólina.

Næstu aldir mótuðu vísindamennirnir Tycho Brahe, Kepler, Galilei og Isaac Newton nýja heimsmynd og lögðu grunninn að nútíma náttúruvísindum.

Trúvilla þessara manna fór mjög fyrir brjóstið á kirkjunnar mönnum enda gengu athuganir þeirra á lögmálum alheimsins og gangi himintunglanna þvert á þær kenningar sem kirkjan hélt fram.

Ítalski heimspekingurinn Giordano Bruno var brenndur á báli fyrir hugmyndir sínar um óendanleika alheimsins, Galilei var leiddur fyrir rannsóknarréttinn í Róm og dæmdur í ævilangt stofufangelsi og Tycho Brahe féll í ónáð og varð að yfirgefa rannsóknarstöð sína eftir að „rétttrúnaðarmenn“ komust til valda í Danmörku í tíð Kristjáns IV.

En stóra skrefið var stigið og síðan hafa menn kappkostað að læra af náttúrunni í stað þess að reiða sig á gamlar kreddur. Nú á dögum kanna gervihnettir ystu kima sólkerfisins og stjörnufræðingar virða fyrir sér í gegnum sjónauka einmitt það sem Bruno dó fyrir á bálinu: reikistjörnur í öðrum sólkerfum í margra ljósára fjarlægð.

Allt byrjaði þetta með þeirri byltingarkenndu hugmynd Kópernikusar að skoða heiminn á nýjan máta.

Sá sem þetta skrifar hefur þegar séð þessa fróðlegu og skemmtilegu mynd og þykir óhætt að mæla eindregið með henni. Við hvetjum ykkur öll til að horfa á þriðjudagskvöldið 8. september kl. 21:00. Hér er hægt að skoða sýnishorn úr myndinni.