Námskeið í stjörnufræði og stjörnuskoðun

Athugaðu, opna í nýjum glugga. Prenta útSenda hlekk á þessa síðu til vinar

22. janúar 2010

Undanfarin ár hafa Stjörnuskoðunarfélag Seltjarnarness og Stjörnufræðivefurinn staðið fyrir námskeiðum um stjörnufræði og stjörnuskoðun. Námskeiðin eru ætluð þeim sem eru að stíga fyrstu skrefin og er boðið upp á fræðslu um áhugaverð fyrirbæri á himninum auk kennslu í grunnatriðum sem tengjast sjónaukum. Skemmst er frá því að segja að námskeiðin hafa hlotið góðar undirtektir og vonandi hjálpað einhverjum af stað við að leggja stund á þetta skemmtilega áhugamál.

Nú í haust er ætlunin að endurtaka leikinn og bjóða upp á byrjendanámskeið 16.-17. febrúar. Verður það með svipuðu sniði og síðast: blanda af fyrirlestrum og fræðslu um sjónauka. Skráning er hafin og eru nánari upplýsingar á námskeiðasíðunni. Einnig er hægt að skrá sig með að fara beint á skráningarsíðuna.

Síðar í sama mánuði verður boðið upp á styttri námskeið fyrir börn og forráðamenn. Þau verða 27. febrúar (1.-4. bekkur) og 28. febrúar (5.-7. bekkur). Skráning á þau er einnig hafin og eru nánari upplýsingar á námskeiðasíðunni.