Árekstur!
9. október 2009

Leiðangri LCROSS lauk rétt í þessu þegar geimfarið rakst á tunglið, fjórum mínútum á eftir Centaur skeytinu. Allt gekk eins og í sögu utan eitt mikilvægt atriði: Því miður sást enginn efnismökkur stíga upp frá tunglinu á myndunum í beinu útsendingunni, sem verður að teljast nokkur vonbrigði, þótt þetta hafi vissulega verið möguleiki sem fáir gerðu ráð fyrir. Það að efnismökkurinn varð ekki eins sýnilegur og menn áttu von á er augljóslega nokkuð sem við munum læra talsvert af, hvað svo sem það verður.
Við munum birta ljósmyndir um leið og þær berast. Samkvæmt fréttamannafundi NASA rétt í þessu gekk allt vel. Dýrmætum og góðum litrófsgögnum var aflað sem mun taka nokkurn tíma að vinna úr. Litrófsgögnin munu einmitt segja okkur hvað þyrlaðist upp.
Hér er skarpasta myndin sem birt hefur verið hingað til af árekstrarstaðnum. Myndin er frá Palomar stjörnustöðinni í Bandaríkjunum og var hún tekin á þeim tíma þegar efnismökkurinn hefði átt að vera sýnilegur. Gígurinn er á bakvið fjallshrygginn sem er áberandi á miðri myndinni. Því miður sést enginn mökkur á myndinni, en það á eftir að vinna úr myndunum sem voru teknar frá jörðinni svo of snemmt er að segja til hvort hann sé þarna eða ekki.


