Celestron FirstScope sjónaukinn: Opinber vara Alþjóðlegs árs stjörnufræðinnar
11. október 2009
Stundum rekumst við á stjörnusjónauka sem uppfylla flestar kröfur okkar um gæði. Sjónaukinn þarf að vera skýr og skarpur. Hann þarf að vera einfaldur í notkun, meðfærilegur og hafa nógu stórt ljósop til þess að maður sjái eitthvað. Honum þurfa að fylgja góðir fylgihlutir og verðið á honum verður að vera í samræmi við gæði. Celestron FirstScope sjónaukinn, sem er opinber vara Alþjóðlegs árs stjörnufræðinnar 2009, er gott dæmi um slíkan sjónauka.
Eitt mikilvægasta markmið Alþjóðlegs árs stjörnufræðinnar er að veita öllum, sérstaklega börnum, auðvelt aðgengi að stjörnuhimninum með hjálp ódýrra stjörnusjónauka. Þannig má hjálpa börnum og öðru áhugafólki að öðlast grunnskilning á alheiminum. Til þess að uppfylla þetta markmið, og fagna ári stjörnufræðinnar, útbjó Celestron FirstScope sjónaukann. Sjónaukinn er opinber vara Alþjóðlegs árs stjörnufræðinnar 2009 og fæst hjá Sjónaukar.is.
Um sjónaukann
Celestron FirstScope sjónaukinn er einstaklega meðfærilegur. Þetta er 76mm spegilsjónauki á Dobsonstæði sem er sáraeinfaldur í notkun. Sjónaukanum fylgja tvö augngler, 20mm og 4mm sem gefa 15x og 75x stækkun.
Til þess að gera þennan sjónauka enn meira aðlaðandi fylgir honum fylgihlutapakki sem inniheldur:
- 5x24 leitarsjónauki
- 12,5mm augngler (24x stækkun)
- 6mm augngler (50x stækkun)
- Tunglsía
- The SkyX stjörnufræðihugbúnaður
- Burðarpoki
Til að fagna ári stjörnufræðinnar hér á Íslandi fylgir sjónaukanum ennfremur (einungis ef pantað er í gegnum Sjónaukar.is)
- Tímaritið Undur alheimsins
- Fræðslumyndin Horft til himins á DVD með íslenskum texta
Celestron FirstScope sjónaukinn hefur nokkra kosti umfram t.d. Celestron AstroMaster 70 sjónaukana. Hann er mun meðfærilegri og einfaldari í notkun. Hann hefur víðara sjónsvið og örlítið stærra ljósop. Auk þess fylgja honum góðir og mjög gagnlegir fylgihlutir. Stjörnufræðivefurinn og Stjörnuskoðunarfélag Seltjarnarness mæla sérstaklega með þessum fína byrjendasjónauka.
- Tegund: Dobson spegilsjónauki
- Ljósop: 3 tommur (76mm)
- Brennivídd: 300mm
- Brennihlutfall: f/3,95
Í hnotskurn:
- Útnefndur opinber var Alþjóðlegs árs stjörnufræðinnar 2009.
- 76mm spegilsjónauki á hágæða Dobsonstæði gerir hann að framúrskarandi byrjendasjónauka
- Sérstaklega meðfærilegur og fisléttur sjónauki sem auðvelt er að geyma, flytja milli staða og setja upp.
- Mjög einfalt að skoða stjörnuhiminninn með honum. Sjáðu gígana á tunglinu, hringa Satúrnusar og Galíleótunglin umhverfis Júpíter.
- Frábær fylgihlutapakki fylgir með sem gerir góðan sjónauka enn betri
- Góður stjörnusjónauki fyrir byrjendur í stjörnuskoðun sem er einfaldur í notkun.
Hvar fæst sjónaukinn?
Sjónaukinn fæst hjá Sjónaukar.is
Umsagnir:
Am I impressed? Yes. I will give you fair warning that the Celestron FirstScope telescope is not the Hubble. I will stress to you repeatedly that you are not going to see majestic sweeping spiral arms on tiny galaxies – nor are you going to resolve globular clusters or reveal intricate planetary details. But, what you can expect from this telescope is far, far more than Galileo saw 400 years ago. When put on a steady surface, the Moon will display its tortured surface and Jupiter its moons. Bright, open star clusters will become things to marvel over and the Andromeda Galaxy will look like it truly is next door. Just as the rings of Saturn "disappeared" on Galileo so long ago, you will only see a fine line now to mark their place until the tilt changes again… But who cares when the summer skies are filled with bright nebula to explore, fuzzy globular clusters to capture and the Milky Way curls across the sky like a swarm of fireflies? Do it for your kids… Do it for your grandkids. Do it for yourself as a momento of IYA 2009. You won't be disappointed.
- Tammy Plotner, The Celestron FirstScope Telescope: Official Product of the International Year of Astronomy, Universe Today.com


