Galíleónætur 22.-24. október 2009

Athugaðu, opna í nýjum glugga. Prenta útSenda hlekk á þessa síðu til vinar

18. október 2009

Galíleónætur

Fimmtudaginn 22. október hefst alþjóðlega vísindamiðlunarverkefnið Galíleónætur (Galilean Nights). Að því tilefni munu hundruð þúsundir manna um heim allan horfa til himins með stjörnusjónauka og skoða það sem Galíleó Galílei sá í fyrsta sinn fyrir 400 árum.

Galíleónætur er eitt mikilvægasta verkefni alþjóðlegs árs stjörnufræðinnar 2009. Það stendur til laugardagsins 24. október og er tilgangurinn að gefa sem flestum kost á að kíkja í gegnum sjónauka á það sem Galíleó sá fyrir 400 árum. Yfir 800 viðburðir í rúmlega 50 löndum hafa verið skipulagðir.

Hér á Íslandi er Stjörnuskoðunarfélag Seltjarnarness þátttakandi í Galíleónóttum. Áhersla er lögð á stjörnuskoðun og verður opið hús í Valhúsaskóla af þessu tilefni. Ef veður leyfir býðst þér og þínum tækifæri til að kíkja í gegnum stærsta stjörnusjónauka landsins. Fyrirhuguð dagskrá er sem hér segir:

Fimmtudagur 22. október

  • Opið hús í Valhúsaskóla milli 20:00 og 22:00
  • Félagsfundur Stjörnuskoðunarfélags Seltjarnarness kl. 20:00. Fræðslumyndin 400 Years of the Telescope sýnd en hún fjallar um sögu stjörnusjónaukans. Myndin var útbúin sérstaklega í tilefni af Alþjóðlegu ári stjörnufræðinnar 2009. Sjá kynningarmyndskeið.
  • Stjörnuskoðun ef veður leyfir

Föstudagur 23. október

  • Opið hús í Valhúsaskóla milli 20:00 og 22:00
  • Fræðslumyndin Journey to Palomar sýnd. Frábær fræðslumynd um George Ellery Hale sem reisti stærstu stjörnusjónauka jarðar á Wilsonfjalli í Kaliforníu og á Palomar. Með tilkomu risasjónauka varð bylting í rannsóknum í stjarnvísindum sem varð til þess að Edwin Hubble uppgötvaði útþenslu alheimsins. Sjá kynningarmyndskeið.
  • Stjörnuskoðun ef veður leyfir.

Laugardagur 24. október

  • Opið hús í Valhúsaskóla milli 20:00 og 22:00
  • Fræðslumyndin Seeing in the Dark sýnd. Myndin er byggð á samnefndri bók eftir stjörnuáhugamanninn Timothy Ferris og fjallar um stjörnuáhugamenn og hvað þeir hafa lagt af mörkum til stjörnufræðinnar. Sjá kynningarmyndskeið.
  • Stjörnuskoðun ef veður leyfir.
Athugið! Dagskráin er birt með fyrirvara um breytingar.

Kynningar á fræðslumyndunum sem sýndar verða

400 Years of the Telescope

 

Journey to Palomar

Seeing in the Dark

Dagskrá Galíleónátta

 

Galíleónætur