Málstofa um Galíleó Galilei
27. október 2009
Málstofa um Galíleó Galilei verður haldin í Þjóðminjasafninu laugardaginn 31. október kl. 13. Málstofan er haldin í tengslum við árlega viku ítölskunnar sem er haldin víða um heim. Fulltrúi Stjörnufræðivefsins mun segja frá Galíleósjónaukanum og þátttöku Íslands í Alþjóðlegu ári stjörnufræðinnar 2009.
Í ár eru 400 ár liðin frá því að Galíleó Galilei gerði merkar uppgötvanir á sviði stjörnufræði en árið 1609 frétti Galíleó af furðulegu ljósfræðitæki í Hollandi, og skömmu síðar tókst honum að smíða sjónauka.
Fyrirlestrar verða fluttir á ensku.
Dagskrá:
- Þorsteinn Vilhjálmsson: Telescope and cosmology. Galileo between science and philosophy
- Michael Segre: Galileo between science and theology yesterday and today
- Stefano Rosatti: Galileo Galilei: a new scientific language for Italian
- Sævar Helgi Bragason: The International Year of Astronomy and a practical presentation of the new Galileoscope.


