LCROSS staðfestir vatn á tunglinu
13. nóvember 2009
Þann 9. október síðastliðinn lét NASA skeyti rekast á Tunglið í gíginn Cabeus en á botni hans hefur sólarljós hefur aldrei náð á skína. Lesa má um árekstur farsins LCROSS á Stjörnufræðivefnum. Nú hafa vísindamenn rýnt í gögnin og fundið sterk sönnunargögn töluvert magn af vatni bæði í efnisskvettunum og gufumekkinum sem reis í kjölfar árekstursins.
Strax eftir áreksturinn birtum við frétt þar sem stóð meðal annars: Því miður sást enginn efnismökkur stíga upp frá tunglinu á myndunum í beinu útsendingunni, sem verður að teljast nokkur vonbrigði, þótt þetta hafi vissulega verið möguleiki sem fáir gerðu ráð fyrir.
Þótt ekki hafi sést mökkur frá árekstrinum í beinu útsendingunni þá var könnunarfarið LCROSS búið nákvæmum mælitækjum sem gat rýnt í þann mökk sem steig upp í um 1.6 km hæð (en náði ekki út fyrir brún gígsins). Nú eftir að vísindamenn hafa rýnt í gögnin hafa þeir fullyrt að ásamt miklu ryki og grjóti hafi töluvert magn íss fundist í efnisskvettunum. Einn vísindamannana segir að vatnsmagnið í skvettunni gæti numið um hundrað lítrum en það er of fljótt að segja til um það nákvæmlega. Það eina sem vitað er fyrir víst að litrófsmælir LCROSS gaf mjög skýrt til kynna að vatn hafi verið til staðar. Önnur efnasambönd gáfu sig ekki jafnvel til kynna en markmið verkefnisins er að bera kennsl á öll efnasambönd jarðvegsins og ákvarða magn hvers og eins.
Michael Wargo sérfræðingur hjá NASA segir að LCROSS hafi bætt við mikilvægum upplýsingum um vitneskju okkar um Tunglið. "Þessi uppgötvun vatnsíss í árekstrarmekkinum er mikilvægur fyrir vísindasamfélagið og einnig vegna þess að vatnsbirgðir á Tunglinu myndu reynast ómetanleg uppspretta fyrir Tunglkönnuði framtíðarinnar". Eins og kom fram á Stjörnufræðivefnum fyrir nokkrum vikum væri unnt að vinna súrefni, drykkjarvatn og jafnvel eldsneyti úr vatninu á Tunglinu.
-Kári Helgason

