Stórfurðulegt landslag
8. janúar 2010

HiRISE er í miklu uppáhaldi hjá Stjörnufræðivefnum. Myndirnar frá þessari öflugustu myndavél sem send hefur verið út í sólkerfið eru í senn stórfurðulegar og stórglæsilegar. Gott dæmi er þessi mynd hér að ofan og neðan.
Hvað í veröldinni er hér um að vera?
Myndin er auðvitað af rauðu reikistjörnunni Mars. Myndin er vísvitandi í fölskum litum til að draga fram smáatriði sem ella sæjust illa eða alls ekki. Á henni sést risasvaxið sandöldusvæði á norðlægum breiddargráðum, á stað sem e.t.v. var á kafi í vatni fyrir milljörðum ára. Á veturnar verður svo kalt á þessum slóðum að koldíoxíðið í lofthjúpnum frýs og þurríslag legst yfir sandöldurnar og bindur ryk í hlíðum sandöldunnar. Með vorinu hækkar sólin á lofti og hitastigið um leið. Við það þurrgufar þurrísinn, rykið losnar úr krumlum hans og fossar niður hlíðarnar. Við það myndast dökku rákirnar í sandölduhlíðunum.
Á myndinni hér fyrir neðan er búið að stækka hluta af svæðinu. Á henni sjást dökku rykrákirnar mjög vel, sitt hvorum meginn sandöldunnar. Á efri hlutanum sést að lítið rykský hefur þyrlast upp við skriðuföllin.
Ef vel er að gáð sjást á myndinni fyrirbæri sem við þekkjum vel í íslenskri náttúru: frosttiglar. Tiglarnir verða til þegar ísinn undir þiðnar. Þegar ísinn frýs þenst hann út, en þegar hann þiðnar dregst hann saman og skilur eftir sig augljóst tiglamynstur.
Mars er alveg ótrúlega heillandi reikistjarna.
Það er ekkert skrítið þótt ein af myndum HiRISE hafi orðin ein af tíu bestu stjörnuljósmyndum ársins 2009. Árið er rétt nýhafið en strax er kominn sterkur kandídat á listann yfir tíu bestu stjörnuljósmyndir ársin 2010.
Tengt efni:
- Sævar Helgi Bragason



