Ný sýn á sólina
2. febrúar 2010
Solar Dynamics Observatory er nýjasta sólkönnunarfar NASA. Því verður skotið út í geiminn þann 10. febrúar næstkomandi frá Canaveralhöfða í Flórída. Gervitunglinu er ætlað að svara spurningum um segulsvið sólar, sólvindinn, sólblossa og kórónuskvettur en saman mynda öll þessi fyrirbæri geimveðrið. Ofsafengið geimveður getur valdið geimförum lífshættu, skapað hættu um borð í flugvélum á sveimi yfir pólsvæðum jarðar og laskað fjarskiptakerfi, samskiptatungl og GPS gervitungl. Þess vegna er mikilvægt að skilja vel eðli geimveðurs. Solar Dynamics Observatory tekur ljósmyndir af sólinni í tífalt hærri upplausn en háskerpusjónvarpsmyndir. SDO sendir daglega 1,5 terabæt af gögnum sem samsvarar því að maður hlaði niður hálfri milljón laga á degi hverjum.
- Solar Dynamics Observatory á Stjörnufræðivefnum
- Heimasíða leiðangurs
- Solar Dynamics Observatory á Facebook
- Solar Dynamics Observatory á Twitter
- Sævar Helgi Bragason

