Sverðþokan í Óríon í nýju ljósi
10. febrúar 2010
Sverðþokan í Óríon (M42) er meðal fegurstu fyrirbæra næturhiminsins sem stjörnuáhugafólk getur skoðað í gegnum litla stjörnusjónauka. Þokan logar dauflega í sverði veiðimannsins mikla Óríons svo tiltölulega einfalt er að finna hana á himninum. Þessi risavaxna stjörnuverksmiðja er í um 1350 ljósára fjarlægð frá jörðinni. Nýverið beindi Stjörnustöð Evrópu á suðurhveli (ESO) VISTA sjónaukanum á Sverðþokuna og var þá þessi glæsilega ljósmynd tekin.
VISTA er innrauður stjörnusjónauki. Það gerir honum kleift að skyggnast djúpt inn í ryksvæðin í stjörnuþokunni. Þessi svæði eru venjulega ósýnileg í sýnilegu ljósi en í innrauðu ljósi sjást þar ungar og mjög virkar og heitar bláar stjörnur. Frá mörgum þessara stjarna streymir gas á um 700.000 km/klst sem mótar þokuna líkt og náttúrulegur myndhöggvari. Forvitnilegt er að skoða muninn á þokunni í sýnilegu ljósi og innrauðu.
Sverðþokan á næturhimninum
Sverðþokan er sýnileg á himinum yfir Íslandi um þessar mundir. Til að finna hana er auðveldast að staðsetja fyrst beltið eða fjósakonurnar í Óríon sem margir kannast við. Í gegnum litla sjónauka er þokan fölgræn á litinn. Við um 50x stækkun sérðu að í þokunni miðri eru fjórar stjörnur sem mynda trapisu.
|
| Kort af stjörnumerkinu Óríon. |
- Sævar Helgi Bragason



