Cassini heimsækir Helstirnið og Kalýpsó
15. febrúar 2010

Í fyrstu Stjörnustríðsmyndinni segir frá því þegar illi keisarinn Palpatín hefur komið upp gríðarmikilli herstöð, Helstirninu, sem er fært um að sprengja reikistjörnur í loft upp og tryggja Veldinu algjört yfirráð í Vetrarbrautinni. Endalok myndarinnar þekkja allir, þegar Logi geimgengill, leiðtogi uppreisnarmanna, sprengir Helstirnið í loft upp. Helstirnið var byggt á nýjan leik og er nú að finna við Satúrnus, eða það mætti að minnsta kosti halda.
Árið 1980, tveimur árum eftir frumsýningu myndarinnar bárust fyrstu nærmyndir Voyagers 1 af Satúrnusartunglinu Mímasi, sem William Herschel hafði uppgötvað næstum 200 árum áður. Mímas var ístungl, þakið gígum og ekki svo ólíkt Íslandi (eða Helstirninu) að stærð. Stærsti gígurinn, og um leið helsta kennileiti tunglsins, olli því að tunglið minnti einna helst á sjálft Helstirnið.
Um liðna helgi (13. og 14. febrúar) heimsótti Cassini geimfarið Mímas í fyrsta og eina skiptið í leiðangrinum og tók í leiðinni nokkrar myndir af Helstirninu.
![]() |
| Helstirnið Mímas við Satúrnus séð með augum Cassinis 13. febrúar 2010. Cassini var í um 70.000 km fjarlægð frá Mímasi þegar myndin var tekin. Í bakgrunni sést í efstu hluta lofthjúps Satúrnusar. Risagígurinn Herschel blasir við. Hann er um 130 km í þvermál. Mynd: NASA/JPL/Space Science Institute |
![]() |
| Nærmynd af gígnum Herschel. Gígbarmarnir eru 5 km háir. Neðst fyrir miðju glittir í fjallstindinn í miðju gígsins sem rís um 6 km upp úr gígnum. Cassini var í rétt innan við 16.000 km fjarlægð þegar myndin var tekin. Eins og sjá má eru miklu færri gígar innan Herschel en annars staðar á tunglinu sem segir okkur að gígurinn er yngri en umhverfið í kring. Mynd: NASA/JPL/Space Science Institute |
Flogið framhjá Kalýpsó
Á leið sinni til Mímasar þaut Cassini framhjá öðru tungli, Kalýpsó. Kalýpsó er örsmátt tungl, aðeins 34 x 22 x 22 km í þvermál. Þetta er í fyrsta sinn sem við berjum þetta örsmáa tungl augum.
| Flogið framhjá Kalýpsó. Á myndskeiðinu sést lögun Kalýpsó nokkuð vel. Mynd: NASA/JPL/SSI/myndskeið Gordan Ugarkovic |
- Sævar Helgi Bragason



