![]() | GammablossarMestu hamfarir náttúrunnar |
Gammablossar (e. Gamma Ray Bursts) eru hrinur rafsegulgeislunar sem berast til jarðar utan úr geimnum að jafnaði einu sinni á sólarhring. Hver hrina er skammlíf og getur varað allt frá sekúndubrotum og upp í allmargar mínútur. Vegna þess hve skammlífir blossarnir eru þarf þó að hafa hraðar hendur við mælingar á þeim. Í ljós hefur komið að blossarnir eru upprunnir í gríðaröflugum stjörnusprengingum í fjarlægum vetrarbrautum og er áætlað að stjarnan verði að vera meira en 40 sinnum massameiri en sólin til að hljóta þessi örlög. Þegar kjarni stjörnunnar fellur saman og myndar svarthol losnar gríðarlega mikil orka, allt að hundraðföld orkan sem losnar í hefðbundinni sprengistjörnu.
Þegar svartholið myndast sýgur það til sín ytri lög stjörnunnar. Þá myndast einnig svokallaðir strókar sem æða með hraða ljóssins út í geiminn í gagnstæðar stefnur. Þessir strókar eru í flestum tilfellum mjög grannir þar sem stærð opnunarhornsins er aðeins nokkrar gráður. Í þeim tilfellum þar sem þessir strókar vísa í átt til jarðar ,,sjáum” við gammablossa, annars einungis tiltölulega venjulega sprengistjörnu.

Sjá einnig fréttir af gammablossum:


