Horft til himins - mynd um sögu sjónaukans

Athugaðu, opna í nýjum glugga. Prenta útSenda hlekk á þessa síðu til vinar

Eyes on the Skies
Út er komin myndin Eyes on the Skies (Horft til himins í íslenskri þýðingu) um sögu stjörnufræðinnar. Tilefni útgáfunnar er alþjóðlegt ár stjörnufræðinnar 2009. Myndin er 60 mínútur að lengd og skiptist í sjö kafla:

1. Ný sýn á himininn
2. Stærra er betra
3. Tæknin kemur til bjargar
4. Úr silfri í kísil
5. Að sjá hið ósýnilega
6. Handan jarðarinnar
7. Hvað kemur næst?

Það var kynningarteymi ESO (Stjörnustöðvar Evrópumanna á suðurhveli) sem hafði umsjón með framleiðslu myndarinnar. Leikstjóri hennar er Lars Lindberg Christensen en myndvinnslu stjórnar Martin Kornmesser. Handritshöfundar eru þeir Govert Schilling og Lars. Síðast en ekki síst ber að nefna sögumanninn Dr. J (sem heitir réttu nafni Dr. Joe Liske) en hann er mörgum lesendum Stjörnufræðivefsins eflaust að góðu kunnur úr myndskeiðum um Hubblesjónaukann (Hubblecast).

Um íslenska þýðingu sáu þeir Snæbjörn Guðmundsson, Sverrir Guðmundsson og Sævar Helgi Bragason.

Myndin er til sölu á þeim viðburðum sem Stjörnuskoðunarfélagið og Stjörnufræðivefurinn standa fyrir og rennur allur ágóði í sjóð til uppbyggingar framtíðaraðstöðu Stjörnuskoðunarfélags Seltjarnarness í Krýsuvík. Öll vinna í kringum hana var unnin í sjálfboðaliðavinnu og vegna bágs efnahagsástands þá gaf ESO Íslendingum 1000 eintök af myndinni. Næsta vetur verður myndin send ásamt kennsluefni frítt í alla grunnskóla á landinu.

Vefsíða Eyes on the Skies (á ensku).