Jólagjafir stjörnuáhugafólksins
29. nóvember 2009

Um þetta leyti árs fáum við fjölda fyrirspurna frá fólki um hvað hægt sé að gefa stjörnuáhugafólki í jólagjöf. Við höfum tekið saman lista yfir góðar og gagnlegar jólagjafir sem óhætt er að mæla með. Hér fyrir neðan er að finna góðar bækur, sjónauka og fylgihluti sem ættu að gleðja stjörnuáhugafólk.
Bækur og blöð
![]() | Tímaritið Undur alheimsins - verð kr. 1.290,- Í tilefni alþjóðlegs árs stjörnufræðinnar gaf Stjörnuskoðunarfélag Seltjarnarness út tímaritið Undur alheimsins. Tímaritið er afar veglegt og telur 86 ríkulega myndskreyttar blaðsíður. Mjög er vandað til útgáfunnar og í blaðinu er fjöldi fróðlegra greina um viðfangsefni íslenskra stjarnvísindamanna. Í blaðinu eru greinar um rannsóknir á Mars, hið dularfulla hulduefni, reikistjörnuljósmyndun og gammablossa svo fátt eitt sé nefnt. Síðast en ekki síst er heilmikið af upplýsingum um áhugaverð fyrirbæri á stjörnuhimninum sem allir stjörnuáhugamenn geta skoðað með sínum eigin stjörnusjónauka. Tímaritið er fáanlegt hjá Bóksölu stúdenta og í bókaverslunum Pennans-Eymundsson um land allt. Með kaupum á tímaritinu styrkir þú starfsemi Stjörnuskoðunarfélags Seltjarnarness. |
![]() | Íslenskur stjörnuatlas - verð kr. 4.990,- Íslenskur Stjörnuatlas er bók ætluð öllum sem hafa áhuga á stjörnuskoðun og stjörnufræði. Um er að ræða leiðsögubók um stjörnuhimininn og hvað má sjá í þeim stjörnumerkjum sem sjást að öllu eða einhverju leyti frá Íslandi. Þar má skoða stjörnur og stjörnuþyrpingar, geimþokur og fjarlægar vetrarbrautir. Bókinni fylgir stjörnuskífa sem sýnir stöðu stjörnumerkjanna á öllum árstímum. Skyldueign fyrir allt stjörnuáhugafólk! |
![]() | Almanak Háskóla Íslands - verð kr. 1.590,- Almanak Háskóla Íslands hefur komið út samfellt síðan 1837. Þar birtast margs konar upplýsingar sem tengjast stjörnufræði. Má þar nefna tímasetningar á gangi sólar og tungls, upplýsingar um göngu reikistjarnanna og hvenær þær sjást á himninum yfir Íslandi, upplýsingar um björtustu fastastjörnurnar, lítið stjörnukort og margt fleira. Við hjá Stjörnufræðivefnum erum duglegir að nota almanakið til þess að átta okkur á göngu sólar og tungls og hvaða reikistjörnur sjást á himninum. Almanakið hefur verið ratað í jólapakka hjá einum af ritstjórum Stjörnufræðivefsins í yfir 15 ár! |
![]() | Geimurinn - verð kr. 1.245,- Sérstaklega vel heppnuð bók um stjörnufræði fyrir börn og unglinga úr ritröðinni Vísindaheimurinn sem bókaútgáfan Skrudda gefur út. Ef þú ert að leita eftir góðri bók fyrir yngsta stjörnuáhugafólkið er óhætt að mæla með þessari. |
Stjörnusjónaukar
![]() |
Celestron FirstScope sjónaukinn er opinber vara Alþjóðlegs árs stjörnufræðinnar 2009. Sjónaukinn er einstaklega meðfærilegur 76mm spegilsjónauki á Dobsonstæði sem er sáraeinfaldur í notkun. Þetta gerir hann að framúrskarandi byrjendasjónauka fyrir unga sem aldna. Með sjónaukanum getur þú skoðað gíga og fjöll á tunglinu, Galíleótunglin við Júpíter og hringa Satúrnusar auk fjölda annarra forvitnilegra fyrirbæra himingeimsins. Með sjónaukanum fylgja tvö augngler, 20mm og 4mm, sem gefa 15x og 75x stækkun. Hér er hægt að lesa gagnrýni Sverris Guðmundssonar á sjónaukanum. Með sjónaukanum fylgir fylgihlutapakki sem inniheldur:
Stjörnufræðivefurinn og Stjörnuskoðunarfélag Seltjarnarness mæla sérstaklega með þessum fína byrjendasjónauka. Ef þú kaupir sjónaukann beint frá Sjónaukar.is fylgir honum tímaritið Undur alheimsins og fræðslumyndina Horft til himins á DVD sem fjallar um 400 ára sögu stjörnusjónaukans. Með kaupum á þessum sjónauka frá Sjónaukar.is styrkir þú starf Stjörnuskoðunarfélags Seltjarnarness. |
![]() | Celestron AstroMaster 114EQ - verð kr. 31.900,-** Ef þú ert að leita eftir sjónauka með stærra ljósop en FirstScope sjónaukinn, er Celestron AstroMaster 114EQ góð kaup. Ef þú kaupir sjónaukann beint frá Sjónaukar.is fylgir honum tímaritið Undur alheimsins og fræðslumyndina Horft til himins á DVD sem fjallar um 400 ára sögu stjörnusjónaukans. Með kaupum á þessum sjónauka frá Sjónaukar.is styrkir þú starf Stjörnuskoðunarfélags Seltjarnarness. ** Þetta verð er eingöngu nettilboð hjá Sjónaukar.is |
![]() | Orion SkyQuest XT4.5 stjörnusjónauki - verð kr. 44.900,-** Hreint út sagt frábær stjörnusjónauki fyrir byrjendur sér í lagi unga stjörnuáhugamenn. Sjónaukinn er sáraeinfaldur í notkun og ótrúlega meðfærilegur. Þetta er einfaldlega einn allra besti byrjandasjónaukinn sem völ er á, sérstaklega þegar mið er tekið af verðinu. Með honum fylgja tvö mjög vönduð augngler sem gefa 36x og 91x stækkun. Ef þú kaupir sjónaukann beint frá Sjónaukar.is fylgir honum tímaritið Undur alheimsins og fræðslumyndina Horft til himins á DVD sem fjallar um 400 ára sögu stjörnusjónaukans. Með kaupum á þessum sjónauka frá Sjónaukar.is styrkir þú starf Stjörnuskoðunarfélags Seltjarnarness. ** Þetta verð er eingöngu nettilboð hjá Sjónaukar |
![]() | Celestron NexStar 130 SLT - verð kr. 84.900,- Mjög góðir og vandaðir tölvustýrðir stjörnusjónaukar sem hjálpa þér að staðsetja fyrirbæri stjörnuhiminsins. NexStar 130 hefur nokkuð stórt ljósop sem þýðir að þú getur hæglega farið að skoða daufari fyrirbæri eins og stjörnuþokur og stjörnuþyrpingar. Ef þú kaupir sjónaukann beint frá Sjónaukar.is fylgir honum tímaritið Undur alheimsins og fræðslumyndina Horft til himins á DVD sem fjallar um 400 ára sögu stjörnusjónaukans. Með kaupum á þessum sjónauka frá Sjónaukar.is styrkir þú starf Stjörnuskoðunarfélags Seltjarnarness.
|
Fylgihlutir fyrir sjónauka
![]() | Orion Sirius Plössl augngler - verð kr. 7.900,-** Augngler eru mikilvægustu fylgiihlutir sjónauka. Góð augngler gera nefnilega góðan sjónauka enn betri. Þau ráða stækkuninni, sjónsviðinu og mjög miklu um gæði myndarinnar sem þú sérð með sjónaukanum. ** Þetta verð er eingöngu nettilboð hjá Sjónaukar.is |
![]() | Tunglsía - verð kr. 3.490,- Stundum er tunglið óþægilega bjart að sjá í gegnum stjörnusjónauka. Þá kemur sér vel að eiga góða tunglsíu sem dregur úr birtunni og skerpir á tunglinu. Þessi tunglsía er mjög vönduð og ætti að vera til í fylgihlutatösku alls stjörnuáhugafólks. |
![]() | Starry Night Enthusiast - verð kr. 14.900,-** Án nokkurs vafa besti stjörnufræðihugbúnaðurinn sem völ er á. Með þessu frábæra stjörnufræðiforrit getur þú skoðað öll fegurustu fyrirbæri næturhiminsins í tölvunni þinni. Starry Night Enthusiast er auk þess frábær leið til þess að læra á stjörnuhiminninn. Hægt er að prenta út eigin stjörnukort, skoða himinninn í framtíð og fortíð **Þetta verð er eingöngu nettilboð hjá Sjónaukar.is |
Annað
- Námskeið í stjörnufræði og stjörnuskoðun. Í febrúar munu Stjörnuskoðunarfélag Seltjarnarness og Stjörnufræðivefurinn bjóða upp á byrjendanámskeið fyrir þá sem hafa áhuga á stjörnufræði og stjörnuskoðun. Sams konar námskeið hafa verið haldin síðustu misseri við góðar undirtektir þátttakenda. Námskeiðið stendur yfir í tvö kvöld og fjalla fyrirlesarar bæði um fyrirbæri á næturhimninum og meðferð sjónauka og annars útbúnaðar. Eftir námskeiðið (þegar veður leyfir) verður boðið upp á stjörnuskoðun þar sem þátttakendur eiga kost á því að mæta með eigin stjörnusjónauka.
Skráning fer fram á astro.is.
Ath. Öll verð eru birt með fyrirvara um villur eða ófyrirséðar gengisbreytingar.













