Athugaðu, opna í nýjum glugga. Prenta útSenda hlekk á þessa síðu til vinar

 

Óríonsarmur Vetrarbrautarinnar

Óríonsarmurinn er þyrilarmur í Vetrarbrautinni okkar. Sólkerfið okkar er að finna við innri brún þessa arms í um 26.000 ljósára fjarlægð frá miðju Vetrarbrautarinnar. Óríonsarmurinn er milli Bogmannsarmsins og Perseifsarmsins, sem eru tveir af fjórum meginörmum Vetrarbrautarinnar.

Óríonsarmurinn dregur nafn sitt af þeirri staðreynd að þær stjörnur sem eru næstar sólinni í þessum armi tilheyra stjörnumerkinu Óríon, í um 2000 ljósára fjarlægð eða minna. Þeirra á meðal eru stjörnurnar í belti Óríons þær Alnilam, Alnitak og Mintaka.

Mikilvægt er að hafa í huga að Óríonsarmurinn er ekki föst eining heldur svæði innan Vetrarbrautarinnar þar sem nýjar stjörnur hafa myndast af völdum þéttleikabylgna og hafa lýst upp milligeimsefnið á milli þeirra.

Í Óríonsarminum eru fjölmörg fyrirbæri úr Messiersskránni:

  • M6 (Fiðrildisþyrpingin)
  • M7 (Ptólmæosarþyrpingin)
  • M23 (Lausþyrping)
  • M25 (Lausþyrping)
  • M27 (Dymbilþokan)
  • M29 (lausþyrping)
  • M34
  • M35 
  • M39
  • M40 (Winnecke 4)
  • M41
  • M42 (Sverðþokan í Óríon)
  • Þoka De Mairans
  • M44 (Jatan eða Býflugnabúið)
  • M45 (Sjöstirnið)
  • M46 
  • M47
  • M48
  • M50
  • M57 (Hringþokan í Hörpunni)
  • M67
  • M73
  • M76 (Litla Dymbilþokan)
  • M78
  • M93
  • M97 (Ugluþokan)