Fjör á safnanótt og byrjendanámskeiði

Athugaðu, opna í nýjum glugga. Prenta útSenda hlekk á þessa síðu til vinar

22. febrúar 2010

Stjörnuskoðunarfélagið og Stjörnufræðivefurinn stóðu fyrir uppákomu á safnanótt í Listasafni Reykjavíkur. Sjö sjálfboðaliðar stóðu vaktina og buðu fólki m.a. í stjörnuskoðun innanhúss, að upplifa hverfitregðu á snúningsdiski og að halda á 4,5 milljarða ára gömlum loftsteinum! Gestir spurðu alls konar spurninga og nokkrir keyptu tímarit félagsins og DVD diskinn Horft til himins. Það var líka gaman að sjá nokkra félaga í Stjörnuskoðunarfélaginu sem kíktu við í Hafnarhúsinu.

Adam Thor Murtoma og Gísli Már Árnason standa vaktina á borði félagsins. Sævar formaður Bragason horfir á þá íbygginn á svip. Ljósmynd: Einar Baldur Þorsteinsson
 
Fólk á öllum aldri fékk að leika skautadansara í tilraun um hverfiþunga. Ljósmynd: Einar Baldur Þorsteinsson
 
Þessi sýnir býsna góða takta. Eins og sjá má var allt fullt af fólki stóran hluta kvöldsins. Ottó Elíasson og formaðurinn fylgjast með svo allt fari vel fram. Ljósmynd: Einar Baldur Þorsteinsson
 
Stjörnuskoðun innandyra bregst aldrei þótt veðrið sé ekki upp á sitt besta útivið. Gestir gátu skoðað Sjöstirnið, Satúrnus og Júpíter í gegnum þennan sjónauka og FirstScope sjónaukann. Gísli er tilbúinn ef eitthvað skyldi bregða út af. Ljósmynd: Einar Baldur Þorsteinsson
 
Gestir fengu að prófa að búa til loftsteinagíga með því að láta stein falla hveiti sem búið var að strá kókómalti yfir. Þegar steinninn féll í gíginn mynduðust ljósar hveitirákir út frá gígnum sem minntu á gíga á tunglinu. Ljósmynd: Einar Baldur Þorsteinsson
 
Formaður félagsins kennir gestum um kvartilaskipti tunglsins. Ljósmynd: Einar Baldur Þorsteinsson
 
Sverrir Guðmundsson mætti með tvö loftsteinabrot og sýndi gestum elsta grjótið sem hægt er að finna á jörðinni. Ljósmynd: Einar Baldur Þorsteinsson

Byrjendanámskeið

Í miðri síðustu viku komu 39 manns á byrjendanámskeið. Það voru níu félagsmenn sem sáu um námskeiðið og veitti ekki af með þetta fjölmenni! Fyrra kvöldið (16. feb.) var brugðið út af venjulegri dagskrá og farið í stjörnuskoðun enda heiðskírt og stillt veður. Seinna kvöldið vorum við með fyrirlestra og buðum þátttakendum upp á gómsætar vöfflur.

Áhuginn skein úr andlitum gesta. Ljósmynd: Óskar Torfi Viggósson
 
Breytt var út af hefðbundinni dagskrá og farið í stjörnuskoðun fyrra kvöldið. Ljósmynd: Óskar Torfi Viggósson
 
Meðal þess sem var að sjá á himninum þetta kvöld voru tunglið, Sjöstirnið, Sverðþokan í Óríon og reikistjarnan Mars. Ljósmynd: Óskar Torfi Viggósson
 
Síðara kvöldið fengu gestir fyrirlestra um sjónauka og hvað hægt er að skoða á himninum. Ljósmynd: Óskar Torfi Viggósson
 
Gestir fengu að prófa hverfiþungatilraun sem fengin var að láni frá HÍ. Ottó Elíasson stýrði tilrauninni af sinni alkunnu röggsemi. Ljósmynd: Óskar Torfi Viggósson

Fleiri myndir frá byrjendanámskeiðinu er að finna á myndasvæði Stjörnuskoðunarfélagsins.

- Sverrir Guðmundsson