Athugaðu, opna í nýjum glugga. Prenta útSenda hlekk á þessa síðu til vinar

Stjörnuskoðun

Þegar ég hef hræðilega þörf fyrir - ætti ég að segja orðið - trú. Þá fer ég út og mála stjörnurnar.
- Vincent van Gogh

- Stjörnuskoðun -

Stjörnuskoðun mánaðarins
Hvað má sjá yfir veturinn á Íslandi?
Himinhvelfingin
Stjörnumerkin
Messierskráin
Sumarþríhyrningurinn
Að skoða reikistjörnurnar
Að skoða sólina
Stjörnuskoðunarstaðir
Stjörnutalning að hausti og vori

- Sjónaukar og fylgihlutir -

Hvernig á að velja stjörnusjónauka?
Tölvustýrðir sjónaukar
Augngler
Síur
Stækkun
Handsjónaukar

- Hollráð og fleira -

Fyrsta stjörnuskoðunin
Stjörnuskyggni
Ljósmengun
Stjörnutalning
Hve dimmur er næturhiminninn?
Birtustig
Hornbil og hornstærðir
Stjörnuskoðun með berum augum

Stjörnuskoðun getur verið ótrúlega skemmtilegt og gefandi áhugamál. Gildir þá einu hvort þú átt stóran, lítinn eða bara alls engan stjörnusjónauka. Ef þú hefur aldrei farið í stjörnuskoðun, og ert hugsanlega nýbúin(n) að fjárfesta í stjörnusjónauka, er mikilvægt að vita hvernig best er að bera sig að. Ánægjuleg og gefandi stjörnuskoðun er nefnilega himnesk upplifun... bókstaflega.

STJÖRNUSKOÐUN MÁNAÐARINS: Stjörnufræðivefurinn gefur út kort fyrir hvern mánuð sem sýnir stjörnumerkin sem sjást á kvöldhimninum yfir Íslandi. Á bakhlið kortsins eru upplýsingar um athyglisverð fyrirbæri ásamt leiðbeiningum fyrir byrjendur í stjörnuskoðun. [Lesa meira]

NÁMSKEIÐ Í STJÖRNUSKOÐUN: Stjörnuskoðunarfélag Seltjarnarness og Stjörnufræðivefurinn bjóða upp á byrjendanámskeið fyrir þá sem hafa áhuga á stjörnufræði og stjörnuskoðun. Sams konar námskeið hafa verið haldin síðustu tvo vetur við góðar undirtektir þátttakenda.
Námskeiðið stendur yfir í tvö kvöld og fjalla fyrirlesarar bæði um fyrirbæri á næturhimninum og meðferð sjónauka og annars útbúnaðar. Eftir námskeiðið (þegar veður leyfir) verður boðið upp á stjörnuskoðun þar sem þátttakendur eiga kost á því að mæta með eigin stjörnusjónauka. [Lesa meira]