![]() | SólmyrkvarAlmyrkvar, hringmyrkvar og deildarmyrkvar |
Sól- og tunglmyrkvar geta aðeins orðið þegar sólin, jörðin og tunglið liggja hér um bil í beinni línu. Myrkvinn á sér þá stað þegar skuggi jarðar fellur á tunglið (tunglmyrkvi) eða skuggi tunglsins á jörðina (sólmyrkvi). Myrkvarnir eru með tilkomumestu atburðum náttúrunnar sem sjá má með berum augum.
Myrkvar geta aðeins orðið þegar tungl er fullt eða nýtt (þá eru sól, jörð og tungl í beinni línu). Þeir gerast þó ekki á tveggja vikna og 29,5 daga fresti (fullt eða nýtt tungl í tunglmánuðinum) því brautarplan tunglsins og brautarplan jarðar eru ekki samsíða. Tunglbrautin hallar um 5° frá braut jarðar og vegna hallans fellur skuggi tunglsins yfirleitt undir eða yfir jörðina.
Tvö eða þrjú myrkvatímabil á ári
Það eru því aðeins tvö eða þrjú tímabil á ári sem myrkvar geta orðið. Þá eru sólin, jörðin og tunglið í beinni línu, ásamt því að vera í sama plani þannig að jörðin og tunglið geti varpað skugga hvort á annað.
Tunglmyrkvar verða aðeins þegar tungl er fullt og fer inn í skugga jarðar. Jörðin er þá á milli tungls og sólar og nær að skyggja á tunglið og myrkva það. Tunglmyrkvar sjást frá allri næturhlið jarðarinnar.
Sólmyrkvar verða aðeins þegar tungl er nýtt og fer fyrir sólina og varpar skugga á takmarkað svæði á yfirborð jarðar. Tunglið er þá milli jarðar og sólar og nær að skyggja á sólina.
Almyrkvi á sólu - mögnuð tilviljun
Almyrkvi á sólu er ótrúleg tilviljun frá náttúrunnar hendi. Frá jörðu séð eru tunglið og sólin ámóta stór á himninum (um 0,5°). Ástæða þess er sú, að þvermál sólar er um 400 sinnum meira en þvermál tunglsins en sólin er 400 sinnum fjarlægari en tunglið. Þetta veldur því að tunglið „passar“ nánast yfir sólina þegar almyrkvi á sólu verður. Í nokkrar mínútur hylur tunglið bjarta kringlu sólarinnar en ekki mikið meira. Sólkórónan sést umhverfis sólina í stutta stund í almyrkva og það er eina tækifærið sem gefst til að ljósmynda hana frá jörðu. Tunglið er hins vegar smám saman að fjarlægjast jörðina (um 3 cm á ári). Eftir nokkur hundruð milljónir ára verður því ekki hægt að sjá almyrkva á sólinni frá yfirborði jarðar.
Fjórar gerðir sólmyrkva
Til eru þrjár gerðir sólmyrkva: almyrkvar, deildarmyrkvar, hringmyrkvar og blandaðir myrkvar.
Skuggi tunglsins skiptist í tvo hluta, alskugga og hálfskugga. Til þess að sjá almyrkva á sólu - þegar sólin hylur allt tunglið - verður athugandinn að vera staddur/stödd í dimmasta hluta skuggans, alskugganum. Þar sem sýndarþvermál sólar og tungls er næstum því jafnt, sést skugginn aðeins á örlitlum skika á jörðinni. Þegar jörðin snýst, myndar skugginn þá svokallaðan myrkvaslóða sem gengur þvert yfir yfirborð jarðar. Breidd hans veltur á fjarlægð jarðar á tungls á meðan almyrkva stendur. Myrkvaslóðinn er breiðastur ef tunglið er í jarðnánd, það er þegar það er næst jörðinni. Mest getur breiddin verið um 270 km en er venjulega er slóðinn mun mjórri. Almyrkvinn sést aðeins á þeim stöðum sem slóði myrkvans liggur yfir (að því gefnu að ekki sé skýjað!).
Skuggakeila tunglsins færist hratt eftir myrkvaslóðanum
Snúningur jarðar og brautarhreyfing tunglsins veldur því að alskugginn þýtur meðfram myrkvaslóðanum á nærri 1700 km hraða á klukkustund. Þess vegna geta almyrkvar aldrei staðið lengur en í sjö og hálfa mínútu á hverjum stað. Algengast er að þeir standi aðeins yfir í 2-4 mínútur.
Sé athugandi staddur innan hálfskuggans hylur tunglið aðeins hluta sólarinnar og er myrkvinn þá aðeins deildarmyrkvi (deild=hluti). Skilyrðin fyrir deildarmyrkva eru ekki nærri því jafnströng og fyrir almyrkva og því sést deildarmyrkvinn á margfalt stærra svæði á jörðinni en almyrkvi (báðum megin við myrkvaslóðann). Við deildarmyrkva virðist sólskífan vera eins konar sigð fyrir tunglinu, því það hylur hluta hennar. Deildarmyrkvi á sér einnig stað á undan og eftir almyrkvum og hringmyrkvum þegar tunglið er að færast fyrir sólina og frá henni.
Hringmyrkvar
Fjarlægð tungls og jarðar er breytileg því braut tunglsins er ekki hringlaga heldur sporbaugur. Það þýðir að fjarlægðin frá jörðu til tunglsins getur minnst verið 356.000 km en mest um 407.000 km (þegar tunglið er í jarðfirrð). Þá er stærð tunglsins á himninum með minnsta móti og nær alskuggi tunglsins þá ekki alveg til jarðar, sem þýðir að tunglið er fyrir miðri sól en nær ekki að hylja hana að fullu. Þá verður til þriðja tegundin af sólmyrkva sem nefnist hringmyrkvi. Umhverfis brún tunglsins sést þá þunnur bogi sólarinnar. Lengd alskuggans er þá nærri 5000 km styttri en meðalfjarlægðin milli tunglsins og jarðar (384.400 km). Þar af leiðandi nær alskuggi tunglsins ekki alltaf yfirborði jarðar, jafnvel þegar afstaða sólar, tungls og jarðar liggur fullkomlega að almyrkva. Hringmyrkvar eru aðeins algengari en almyrkvar og geta varað í allt að 12 mínútur og 30 sekúndur.
Á hverju ári verða að minnsta kosti tveir sólmyrkvar en aldrei fleiri en fimm. Síðast urðu fimm myrkvar á sólu árið 1935, fjórir deildarmyrkvar og einn hringmyrkvi. Næst verða 5 sólmyrkvar árið 2206. Á hverri öld verða að meðaltali 239 sólmyrkvar á jörðinni, þar af um 80 almyrkvar, og á tilteknum stað á jörðinni líða að meðaltali 375 ár milli almyrkva, sem þó fer eftir breiddargráðu á hnettinum.
Síðasti sást almyrkvi á Íslandi árið 1954 við suðurströnd landsins (sást ekki frá Reykjavík) en næsti almyrkvi verður 12. ágúst 2026 (sést frá vesturströnd Íslands). Reyndar mun sjást almyrkvi á Norður-Atlantshafi 20. mars 2015 og er um að gera að panta hótelherbergi á Svalbarða í tæka tíð til þess að missa ekki af myrkvanum.
Hinn 31. maí 2003 sást hringmyrkvi á Íslandi en það hafði ekki gerst síðan 1793. Næsti hringmyrkvi hér á landi verður ekki fyrr en 2048.
Nánar má lesa um tíðni sólmyrkva í Almanaki Háskóla Íslands, sem er í umsjá Þorsteins Sæmundssonar stjörnufræðings.
Listi yfir sólmyrkva til ársins 2050
Hér fyrir neðan er tafla yfir sólmyrkva á jörðinni til ársins 2050. Þeir almyrkvar og hringmyrkvar sem sjást frá Íslandi eru rauðmerktir.
| Dagsetning | Tímasetning myrkva í hámarki (ísl. tími) | Saros (myrkvaöld) | Tegund | Hluti sólar tungl hylu | Tímalengd almyrkva / hringmyrkva | Breidd myrkvaferils | Landsvæði þar sem myrkvinn sést | Athugasemdir |
|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
| 22. júlí 2009 | 02:36:25 | 136 | Almyrkvi | 1.080 | 06m 39s | 258 km | Almyrkvi: mið og norðaustur Indland, Bútan, Bangladess, Mýanmar, Kína, Ryukyu eyjar Deildarmyrkvi: Suðaustur Asía, Japan, Suður-Kórena, Filipseyjar, Indónesía, Mið-Kyrrahafssvæðið og eyjar þar | Lengsti almyrkvi 21. aldar |
| 15. janúar 2010 | 07:07:39 | 141 | Hringmyrkvi | 0.919 | 11m 08s | 333 km | Hringmyrkvi: Mið-Afríku lýðveldið, Lýðveldið Kongó, Úganda, Maldíveyjar, suðaustur Indland, Srí Lanka, Mýanmar, mið Kína Deildarmyrkvi: Afríka, suðaustur Evrópa, Miðausturlönd, Asía | |
| 11. júlí 2010 | 19:34:38 | 146 | Almyrkvi | 1.058 | 05m 20s | 259 km | Almyrkvi: suður Chile og Argentína, suðaustur Pólynesía Deildarmyrkvi: suðvestur Suður-Ameríka, Franska Pólynesía
| |
| 4. janúar 2011 | 08:51:42 | 151 | Deildarmyrkvi | 0.858 | — | — | Deildarmyrkvi: Evrópa, norður-Afríka, mið Asía, Miðausturlönd | |
| 1. júní 2011 | 21:17:18 | 118 | Deildarmyrkvi | 0.601 | — | — | Deildarmyrkvi: Ísland, norður Kanada, Alaska, norðaustur Asía, Grænland, norður Skandinavía | |
| 1. júlí 2011 | 08:39:30 | 156 | Deildarmyrkvi | 0.097 | — | — | Deildarmyrkvi: suður Indlandshaf skammt frá Suðurheimskautslandinu | |
| 25. nóvember 2011 | 06:21:24 | 123 | Deildarmyrkvi | 0.905 | — | — | Deildarmyrkvi: suðvestur Suður Afríka, Suðurheimskautslandið, Tasmanía, Nýja Sjáland | |
| 20. maí 2012 | 23:53:54 | 128 | Hringmyrkvi | 0.944 | 05m 46s | 237 km | Hringmyrkvi: suður Kína, Hong Kong, Macau, Kyūshū, Shikoku, suður Honsjú, Tókýó, Oregon, Nevada, Utah, Arizona, Nýja Mexíkó Deildarmyrkvi: Kyrrahaf, austur Asía, Norður Ameríka, Hawaii | |
| 13. nóvember 2012 | 22:12:55 | 133 | Almyrkvi | 1.050 | 04m 02s | 179 km | Almyrkvi: Ástralía, Kermadeceyjar, Nýja Sjáland Deildarmyrkvi: Ástralía, Nýja Sjáland, Melanesía, suðaustur Suður Ameríka, suður Kyrrahaf, Pólynesía, Suðurheimskautslandið | |
| 10. maí 2013 | 00:26:20 | 138 | Hringmyrkvi | 0.954 | 06m 03s | 173 km | Hringmyrkvi: Ástralía, Louisiade eyjaklasinn, Solomonseyjar, Kíribaseyjar Deildarmyrkvi: Ástralía, Nýja Sjáland, Kyrrahaf, Hawaii, Indónesía | |
| 3. nóvember 2013 | 12:47:36 | 143 | Blandaður | 1.016 | 01m 40s | 58 km | Blandaður: Gabon, Lýðveldið Kongó, Úganda, Kenýa, Eþíópía Deildarmyrkvi: austanverð Ameríka, austur Kanada, Karíbahafið, austanverð Suður Ameríka, suður Evrópa, Afríka | |
| 29. apríl 2014 | 06:04:33 | 148 | Hringmyrkvi | 0.987 | — | — | Hringmyrkvi: vestanvert Wilkesland Deildarmyrkvi: suður Indland, Ástralía, austanvert Suðurheimskautslandið | |
| 23. október 2014 | 21:45:39 | 153 | Deildarmyrkvi | 0.811 | — | — | Deildarmyrkvi: norður Kyrrhaf, Norður-Ameríka, Mexíkó, austur Rússland | |
| 20. mars 2015 | 09:46:47 | 120 | Almyrkvi | 1.045 | 02m 47s | 463 km | Almyrkvi: Færeyjar, Svalbarði, Norður-Atlantshaf, Norðurpóll Deildarmyrkvi: Ísland, Grænland. Evrópa, mið Asía, vestur Rússland | Ferill myrkvans er sunnan og austan Íslands. Í Reykjavík verður 97% sólar á bak við tunglið[3] |
| 13. september 2015 | 06:55:19 | 125 | Deildarmyrkvi | 0.788 | — | — | Deildarmyrkvi: sunnanverð Afríka, suður Indland, austanvert Suðurheimskautslandið | |
| 9. mars 2016 | 01:58:19 | 130 | Almyrkvi | 1.045 | 04m 09s | 155 km | Almyrkvi: Indónesía, Míkrónesía, Marshalleyjar Deildarmyrkvi: suðaustur Asía, Kórea, Japan, austur Rússland, Alaska, norðvestur Ástralía, Hawaii, Kyrrhaf | |
| 1. september 2016 | 09:08:02 | 135 | Hringmyrkvi | 0.974 | 03m 06s | 100 km | Hringmyrkvi: Atlantshafið, mið Afríka, Madagaskar, Indlandshaf Deildarmyrkvi: Afríka, Indlandshaf | |
| 26. febrúar 2017 | 14:54:33 | 140 | Hringmyrkvi | 0.992 | 00m 44s | 31 km | Hringmyrkvi: suður Chile og Argentína, Angóla, suðvestur Katanga Deildarmyrkvi: sunnan- og vestanverð Afríka, sunnanverð Suður Ameríka, Suðurheimskautslandið | |
| 21. ágúst 2017 | 18:26:40 | 145 | Almyrkvi | 1.031 | 02m 40s | 115 km | Almyrkvi: Oregon, Idaho, Wyoming, Nebraska, Kansas, Missouri, Illinois, Kentucky, Tennessee, Norður Karólína, Georgía, Suður Karólína Deildarmyrkvi: Norður Ameríka, Hawaii, Grænland, Ísland, Bretlandseyjar, Portúgal, Mið Ameríka, Karíbahafið, norðanverð Suður Ameríka, Chukchiskagi | |
| 15. febrúar 2018 | 20:52:33 | 150 | Deildarmyrkvi | 0.599 | — | — | Deildarmyrkvi: Suðurheimskautslandið, sunnanverð Suður Ameríka | |
| 13. júlí 2018 | 03:02:16 | 117 | Deildarmyrkvi | 0.336 | — | — | Deildarmyrkvi: Ástralía, Indlandshaf | |
| 11. ágúst 2018 | 09:47:28 | 155 | Deildarmyrkvi | 0.737 | — | — | Deildarmyrkvi: Kanada, Grænland, Ísland, Íshaf, Skandinavía, Bretlandseyjar, Rússland, norðanverð Asía | |
| 6. janúar 2019 | 01:42:38 | 122 | Deildarmyrkvi | 0.715 | — | — | Deildarmyrkvi: norðaustur Asía, suðvestur Alaska, Aljútaeyjar | |
| 2. júlí 2019 | 19:24:08 | 127 | Almyrkvi | 1.046 | 04m 33s | 201 km | Almyrkvi: mið Argentína og Chile Deildarmyrkvi: Suður Ameríka, Páskaeyja, Galapagoseyjar, sunnanverð Mið Ameríka, Pólynesía | |
| 26. desember 2019 | 05:18:53 | 132 | Hringmyrkvi | 0.970 | 03m 40s | 118 km | Hringmyrkvi: Sádi Arabía, Barein, Qatar, Sameinuðu Arabísku furstadæmin, Óman, Indland, Srí Lanka, Súmatra, Malasía, Síngapúr, Borneó, Indónesía, Paláeyjar, Míkrónesía Deildarmyrkvi: Asía, Ástralía, Miðausturlönd, austanverð Afríka | |
| 21. júní 2020 | 06:41:15 | 137 | Hringmyrkvi | 0.994 | 00m 38s | 21 km | Hringmyrkvi: Lýðveldið Kongó, Súdan, Eþíópía, Erítrea, Jemen, Óman, Pakistan, Indland, Nýja Delí, Tíbet, suður Kína, Tævan Deildarmyrkvi: Asía, suðaustur Evrópa, Afríka, Miðausturlönd, Ástralía | |
| 14. desember 2020 | 16:14:39 | 142 | Almyrkvi | 1.025 | 02m 10s | 90 km | Almyrkvi: suður Chile og Argentína, Kiribaseyjar, Pólynesía Deildarmyrkvi: mið og sunnanverð Suður Ameríka, suðvestur Afríka, Suðurheimskautslandið | |
| 10. júní 2021 | 10:43:07 | 147 | Hringmyrkvi | 0.943 | 03m 51s | 527 km | Hringmyrkvi: norðanvert Kanada, Grænland, Rússland Deildarmyrkvi: norðanverð Norður Ameríka, Evrópa, Asía | |
| 4. desember 2021 | 07:34:38 | 152 | Almyrkvi | 1.037 | 01m 54s | 419 km | Almyrkvi: Suðurheimskautslandið Deildarmyrkvi: Suður Afríka, suður Atlantshaf | |
| 30. apríl 2022 | 20:42:36 | 119 | Deildarmyrkvi | 0.640 | — | — | Deildarmyrkvi: South-east Pacific, south South America | |
| 25. október 2022 | 11:01:20 | 124 | Deildarmyrkvi | 0.862 | — | — | Deildarmyrkvi: Evrópa, norðaustur Afríka, Miðausturlönd, vestanverð Asía | |
| 20. apríl 2023 | 04:17:56 | 129 | Hybrid | 1.013 | 01m 16s | 49 km | Blandaðaur: Indónesía, Ástralía, Papúa Nýja Gínea Deildarmyrkvi: suðaustur Asía, Austur Indíur, Filipseyjar, Nýja Sjáland | |
| 14. október 2023 | 18:00:41 | 134 | Hringmyrkvi | 0.952 | 05m 17s | 187 km | Hringmyrkvi: vesturströnd Bandaríkjanna, mið Ameríka, Kólumbía, Brasilía Deildarmyrkvi: Norður Ameríka, Mið Ameríka, Suður Ameríka | |
| 8. apríl 2024 | 18:18:29 | 139 | Almyrkvi | 1.057 | 04m 28s | 198 km | Almyrkvi: Mexíkó, miðríki Bandaríkjanna, austurhluti Kanada Deildarmyrkvi: Norður Ameríka, Mið Ameríka | |
| 2. október 2024 | 18:46:13 | 144 | Hringmyrkvi | 0.933 | 07m 25s | 266 km | Hringmyrkvi: suður Chile og Argentína Deildarmyrkvi: Kyrrahaf, sunnanverð Suður Ameríka | |
| 29. mars 2025 | 10:48:36 | 149 | Deildarmyrkvi | 0.938 | — | — | Deildarmyrkvi: norðvestur Afríka, Evrópa, norður Rússland | |
| 21. september 2025 | 19:43:04 | 154 | Deildarmyrkvi | 0.855 | — | — | Deildarmyrkvi: sunnanvert Kyrrahaf, Nýja Sjáland, Suðurheimskautslandið | |
| 17. febrúar 2026 | 12:13:06 | 121 | Hringmyrkvi | 0.963 | 02m 20s | 616 km | Hringmyrkvi: Suðurheimskautslandið Deildarmyrkvi: suður Argentína, Chile, sunnanverð Afríka, Suðurheimskautslandið | |
| 12. ágúst 2026 | 17:47:06 | 126 | Almyrkvi | 1.039 | 02m 18s | 294 km | Almyrkvi: Norðurheimskautið, Grænland, Ísland, Spánn Deildarmyrkvi: norðanverð Norður-Ameríka, vestur Afríka, Evrópa | Í Reykjavík stendur almyrkvi yfir í 1 mín og 10 sek. |
| 6. febrúar 2027 | 16:00:48 | 131 | Hringmyrkvi | 0.928 | 07m 51s | 282 km | Hringmyrkvi: Chile, Argentina, Atlantshaf Deildarmyrkvi: Suður-Ameríka, Suðurheimskautslandið, vestan- og sunnanverð Afríka | |
| 2. ágúst 2027 | 10:07:50 | 136 | Almyrkvi | 1.079 | 06m 23s | 258 km | Almyrkvi: Morokkó, Spánn, Alsír, Líbýa, Egyptaland, Sádi-Arabía, Jemen, Sómalía Deildarmyrkvi: Afríka, Evrópa, Miðausturlönd, vestur og suður Asía | |
| 26. janúar 2028 | 15:08:59 | 141 | Hringmyrkvi | 0.921 | 10m 27s | 323 km | Hringmyrkvi: Ekvador, Perú, Brasilía, Súrinam, Spánn, Portúgal Deildarmyrkvi: austanverð Norður-Ameríka, mið- og suður Ameríka, vestur Evrópa, norðvestur Afríka | |
| 22. júlí 2028 | 02:56:40 | 146 | Almyrkvi | 1.056 | 05m 10s | 230 km | Almyrkvi: Ástralía, Nýja Sjáland Deildarmyrkvi: suðaustur Asía, austur Indíur | |
| 14. janúar 2029 | 17:13:48 | 151 | Deildarmyrkvi | 0.871 | — | — | Deildarmyrkvi: Norður Ameríka, Mið Ameríka | |
| 12. júní 2029 | 04:06:13 | 118 | Deildarmyrkvi | 0.458 | — | — | Deildarmyrkvi: Norðurheimskautið, Skandinavía, Alaska, norður Asía, norður Kanada | |
| 11. júlí 2029 | 15:37:19 | 156 | Deildarmyrkvi | 0.230 | — | — | Deildarmyrkvi: suður Chile, suður Argentína | |
| 5. desember 2029 | 15:03:58 | 123 | Deildarmyrkvi | 0.891 | — | — | Deildarmyrkvi: suður Chile, suður Argentína, Suðurheimskautslandið | |
| 1. júní 2030 | 06:29:13 | 128 | Hringmyrkvi | 0.944 | 05m 21s | 250 km | Hringmyrkvi: Alsír, Túnis, Grikkland, Tyrkland, Rússland, norður Kína, Japan Deildarmyrkvi: Evrópa, norður Afríka, Miðausturlönd, Asía, Norðurheimskautið, Alaska | |
| 25. nóvember 2030 | 06:51:37 | 133 | Almyrkvi | 1.047 | 03m 44s | 169 km | Almyrkvi: Botswana, Suður-Afríka, Ástralía | |
| 21. maí 2031 | 07:16:04 | 138 | Hringmyrkvi | 0.959 | 05m 26s | 152 km | Hringmyrkvi: Angóla, Lýðveldið Kongó, Sambía, Tanzanía, suður Indland, Malasía, Indónesía Deildarmyrkvi: Afríka, suður Asía, Austur Indíur, Ástralía | |
| 14. nóvember 2031 | 21:07:31 | 143 | Hybrid | 1.011 | 01m 08s | 38 km | Blandaður: Kyrrhaf, Panama Deildarmyrkvi: sunnanverð Bandaríkin, Mið Ameríka, norðvestur Suður Ameríka | |
| 9. maí 2032 | 13:26:42 | 148 | Hringmyrkvi | 0.996 | 00m 22s | 44 km | Hringmyrkvi: suður Atlantshaf Deildarmyrkvi: sunnanverð Suður Ameríka, sunnanverð Afríka | |
| 3. nóvember 2032 | 05:34:13 | 153 | Deildarmyrkvi | 0.855 | — | — | Deildarmyrkvi: Asía | |
| 30. mars 2033 | 18:02:36 | 120 | Almyrkvi | 1.046 | 02m 37s | 781 km | Almyrkvi: austur Rússland, Alaska Deildarmyrkvi: Norður Ameríka | |
| 23. september 2033 | 13:54:31 | 125 | Deildarmyrkvi | 0.689 | — | — | Deildarmyrkvi: suður Suður Ameríka, Suðurheimskautslandið | |
| 20. mars 2034 | 10:18:45 | 130 | Almyrkvi | 1.046 | 04m 09s | 159 km | Almyrkvi: Nígería, Kamerún, Tsjad, Súdan, Egyptaland, Sádi Arabía, Íran, Afganistan, Pakista, Indland, Kína Deildarmyrkvi: Afríka, Evrópa, vestur Asía | |
| 12. september 2034 | 16:19:28 | 135 | Hringmyrkvi | 0.974 | 02m 58s | 102 km | Hringmyrkvi: Chile, Bólivía, Argentína, Paragvæ, Brasilía Deildarmyrkvi: Mið Ameríka, Suður Ameríka | |
| 9. mars 2035 | 23:05:54 | 140 | Hringmyrkvi | 0.992 | 00m 48s | 31 km | Hringmyrkvi: Nýja Sjáland, Kyrrhaf Deildarmyrkvi: Ástralía, Mexíkó, Suðurheimskautslandið | |
| 2. september 2035 | 01:56:46 | 145 | Almyrkvi | 1.032 | 02m 54s | 116 km | Almyrkvi: Kína, Kórea, Japan, Kyrrahaf Deildarmyrkvi: austur Asía, Kyrrahaf | |
| 27. febrúar 2036 | 04:46:49 | 150 | Deildarmyrkvi | 0.629 | — | — | Deildarmyrkvi: Suðurheimskautslandið, suður Ástralía, Nýja Sjáland | |
| 23. júlí 2036 | 10:32:06 | 117 | Deildarmyrkvi | 0.199 | — | — | Deildarmyrkvi: suður Atlantshaf | |
| 21. ágúst 2036 | 17:25:45 | 155 | Deildarmyrkvi | 0.862 | — | — | Deildarmyrkvi: Alaska, Kanada, Norðurheimsskautið, vestur Evrópa, norðvestur Afríka | |
| 16. janúar 2037 | 09:48:55 | 122 | Deildarmyrkvi | 0.705 | — | — | Deildarmyrkvi: norður Afríka, Evrópa, Miðausturlönd, vestur Asía | |
| 13. júlí 2037 | 02:40:36 | 127 | Almyrkvi | 1.041 | 03m 58s | 201 km | Almyrkvi: Ástralía, Nýja Sjáland Deildarmyrkvi: Austur Indíur, Ástralía, Kyrrhaf | |
| 5. janúar 2038 | 13:47:11 | 132 | Hringmyrkvi | 0.973 | 03m 18s | 107 km | Hringmyrkvi: Kúba, Dóminíska Lýðveldið, Fílabeinsströnd, Gana, Níger, Tsjad, Egyptaland Deildarmyrkvi: austur Norður Ameríka, norður Suður Ameríka, Atlantshaf, Afríka, Evrópa | |
| 2. júlí 2038 | 13:32:55 | 137 | Hringmyrkvi | 0.991 | 01m 00s | 31 km | Hringmyrkvi: Kólumbía, Venesúela, Máritanía, Morokkó, Malí, Níger, Tsjad, Súdan, Eþíópía, Kenýa Deildarmyrkvi: Norður og Mið Ameríka, Suður Ameríka, Afríka, Evrópa, Miðausturlönd | |
| 26. desember 2038 | 01:00:10 | 142 | Almyrkvi | 1.027 | 02m 18s | 95 km | Almyrkvi: Ástralía, Nýja Sjáland, suður Kyrrahaf Deildarmyrkvi: suðaustur Asía, Austur Indía, Ástralía, Nýja Sjáland, suður Kyrrahaf, Suðurheimskautslandið | |
| 21. júní 2039 | 17:12:54 | 147 | Hringmyrkvi | 0.945 | 04m 05s | 365 km | Hringmyrkvi: Alaska, norður Kanada, Noregur, Svíþjóð, Finnland, Eistland, Rússland Deildarmyrkvi: Norður Ameríka, vestur Evrópa | |
| 15. desember 2039 | 16:23:46 | 152 | Almyrkvi | 1.036 | 01m 51s | 380 km | Almyrkvi: Suðurheimskautslandið Deildarmyrkvi: suður Suður Ameríka | |
| 11. maí 2040 | 03:43:02 | 119 | Deildarmyrkvi | 0.531 | — | — | Deildarmyrkvi: Ástralía, Nýja Sjáland, Suðurheimskautslandið | |
| 4. nóvember 2040 | 19:09:02 | 124 | Deildarmyrkvi | 0.807 | — | — | Deildarmyrkvi: Norður og Mið Ameríka | |
| 30. apríl 2041 | 11:52:21 | 129 | Almyrkvi | 1.019 | 01m 51s | 72 km | Almyrkvi: Angóla, Lýðveldið Kongó, Úganda, Kenýa, Sómalía Deildarmyrkvi: Brasilía, Afríka, Miðausturlönd | |
| 25. október 2041 | 01:36:22 | 134 | Hringmyrkvi | 0.947 | 06m 07s | 213 km | Hringmyrkvi: Mongólía, Kína, Kórea, Japan, Kyrrahaf Deildarmyrkvi: austur Asía, Kyrrahaf | |
| 20. apríl 2042 | 02:17:30 | 139 | Almyrkvi | 1.061 | 04m 51s | 210 km | Almyrkvi: Malasía, Indónesía, Filipseyjar, norður Kyrrahaf Deildarmyrkvi: austur og suðaustur Asía, Ástralía, Kyrrahaf | |
| 14. október 2042 | 02:00:42 | 144 | Hringmyrkvi | 0.930 | 07m 44s | 273 km | Hringmyrkvi: Tæland, Malasía, Indónesía, Ástralía, Nýja Sjáland Deildarmyrkvi: suðaustur Asía, Austur Indíur, suður Kyrrahaf, Suðurheimskautslandið | |
| 9. apríl 2043 | 18:57:49 | 149 | Almyrkvi | 1.010 | — | — | Almyrkvi: norðaustur Rússland Deildarmyrkvi: norðanverð Norður Ameríka, norðaustur Asía | |
| 3. október 2043 | 03:01:49 | 154 | Hringmyrkvi | 0.950 | — | — | Hringmyrkvi: suður Indlandshaf Deildarmyrkvi: Suðurheimskautslandið, suðvestur Ástralía, Indlandshaf | |
| 28. febrúar 2044 | 20:24:40 | 121 | Hringmyrkvi | 0.960 | 02m 27s | — | Hringmyrkvi: suður Atlantshaf Deildarmyrkvi: Suðurheimskautslandið, Suður Ameríka | |
| 23. ágúst 2044 | 01:17:02 | 126 | Almyrkvi | 1.036 | 02m 04s | 453 km | Almyrkvi: Grænland, norður Kanada, Montana, Norður Dakóta Deildarmyrkvi: norður Asía, vestanverð Norður Ameríka, Grænland | |
| 16. febrúar 2045 | 23:56:07 | 131 | Hringmyrkvi | 0.928 | 07m 47s | 281 km | Hringmyrkvi: Nýja Sjáland, Kyrrahaf | |
| 12. ágúst 2045 | 17:42:39 | 136 | Almyrkvi | 1.077 | 06m 06s | 256 km | Almyrkvi: suður Bandaríkin, Haítí, Dominíska Lýðveldið, Venesúela, Gvæjana, Franska-Gvæjana, Súrinam, Brasilía Deildarmyrkvi: Norður, Mið og Suður Ameríka, vestanverð Afríka | |
| 5. febrúar 2046 | 23:06:26 | 141 | Hringmyrkvi | 0.923 | 09m 42s | 310 km | Hringmyrkvi: Papúa Nýja Gínea, Hawaii, Kalifornía, Oregon, Idaho Deildarmyrkvi: Ástralía, vestur Bandaríkin | |
| 2. ágúst 2046 | 10:21:13 | 146 | Almyrkvi | 1.053 | 04m 51s | 206 km | Almyrkvi: Brasilía, Angóla, austur Namibía, Botswana, Suður Afríka, Svasíland, suður Mósambík Deildarmyrkvi: Afríka | |
| 26. janúar 2047 | 01:33:18 | 151 | Deildarmyrkvi | 0.891 | — | — | Deildarmyrkvi: austur Asía, Alaska | |
| 23. júní 2047 | 10:52:31 | 118 | Deildarmyrkvi | 0.313 | — | — | Deildarmyrkvi: norður Kanada, Grænland, norðaustur Asía | |
| 22. júlí 2047 | 22:36:17 | 156 | Deildarmyrkvi | 0.361 | — | — | Deildarmyrkvi: suðaustur Ástralía, Nýja Sjáland | |
| 16. desember 2047 | 23:50:12 | 123 | Deildarmyrkvi | 0.882 | — | — | Deildarmyrkvi: Suðurheimskautslandið, suður Chile, suður Argentina | |
| 11. júní 2048 | 12:58:53 | 128 | Hringmyrkvi | 0.944 | 04m 58s | 272 km | Hringmyrkvi: miðvestur Bandaríkin, Quebec, Ontario, Grænland, Ísland, Noregur, Svíþjóð, Rússland, Afganistan Deildarmyrkvi: Norður Ameríka, Karíbahafið, norður Afríka, Evrópa, vestur Asía | Í Reykjavík stendur hringmyrkvinn yfir í 4,6 mínútur[3] |
| 5. desember 2048 | 15:35:27 | 133 | Almyrkvi | 1.044 | 03m 28s | 160 km | Almyrkvi: Chile, Argentina, Namibía, Botswana Deildarmyrkvi: sunnanverð Suður Ameríka, suðvestur Afríka | |
| 31. maí 2049 | 13:59:59 | 138 | Hringmyrkvi | 0.963 | 04m 45s | 134 km | Hringmyrkvi: Perú, Ekvador, Kólumbía, Venesúela, Gvæjana, Senegal, Malí, Búrkína Fasó, Gana, Nígería Deildarmyrkvi: suðaustur Bandaríkin, Mið Ameríka, Suður Ameríka, Afríka, suður Evrópa | |
| 25. nóvember 2049 | 05:33:48 | 143 | Hybrid | 1.006 | 00m 38s | 21 km | Blandaður: Sádi Arabía, Jemen, Malasía, Indónesía Deildarmyrkvi: austur Afríka, suður Asía, Austur Indíur, Ástralía | |
| 20. maí 2050 | 20:42:50 | 148 | Hybrid | 1.004 | 00m 21s | 27 km | Blandaður: Suður Kyrrahaf Deildarmyrkvi: Nýja Sjáland, suðvestur Suður Ameríka | |
| 14. nóvember 2050 | 13:30:53 | 153 | Deildarmyrkvi | 0.887 | — | — | Deildarmyrkvi: norðaustur Bandaríkin, austur Kanada, norður-Afríka, Evrópa |
Heimildir
- d
- d
- Þorsteinn Sæmundsson. 2006. Sólmyrkvar á Íslandi fram til 2200. Vefsíða Almanaks Háskóla Íslands. Sótt 10. ágúst 2009.
- d
- d

