![]() | Sumarþríhyrningurinn |
Sumarþríhyrningurinn er ímyndaður þríhyrningur sem þrjár áberandi bjartar og fallegar stjörnur mynda. Þetta eru þær Vega í Hörpunni, Altair í Erninum og Deneb í Svaninum. Allar stjörnurnar þrjár eru í hópi 25 björtustu stjarna á næturhimninum.
Þótt stjörnurnar virðist allar álíka bjartar eru þær mjög ólíkar í reynd. Altair er nálægust af stjörnunum þremur í aðeins 17 ljósára fjarlægð og björt þar af leiðandi en engu að síður tífalt bjartari en sólin okkar. Vega kemur næst en hún er í 25 ljósára fjarlægð og 52x sinnum bjartari en sólin okkar. Fjarlægust er Deneb í 3230 ljósára fjarlægð en 70.000x bjartari en sólin okkar! Deneb er risastjarna sem einn daginn endar ævi sína sem sprengistjarna.
| Stjarna | Stjörnumerki | Sýndarbirtustig | Ljósafl (sól = 1) | Litrófsgerð | Fjarlægð (ljósár) |
| Vega | Harpan | 0,03 | 52 | A0 | 25 |
| Deneb | Svanurinn | 1,25 | 70.000 | A2 | 3230 |
| Altair | Örninn | 0,77 | 10 | A7 | 17 |
Sumarþríhyrningurinn er hátt á lofti yfir Íslandi snemma hausts (í ágúst og september) en sést einnig vel hátt á lofti árla morguns á vorin. Vega er jafnframt fyrsta stjarnan sem sjáanleg er frá Íslandi í lok sumars. Í júlí og ágúst glittir í hana í hvirfilpunkti þegar birtan frá sólinni er hvað minnst. Á haustin sígur hann hægt og rólega neðar á himinninn og sést vart frá desember og ram í febrúar. Reyndar eru bæði Vega og Deneb pólhverfar frá Íslandi séð en ekki Altair.
Á suðurhveli jarðar er þríhyrningurinn „á hvolfi“ og lágt á lofti á veturna. Þar er sumarþríhyrningurinn því kallaður vetrarþríhyrningurinn.
![]() |
| Sumarþríhyrningurinn séð að hausti til frá Íslandi. |
Sjá nánar: Stjörnumerkin
Sjá nánar: Himinhvelfingin
Sjá nánar: Leiðarmerki
Sjá nánar: Vetrarþríhyrningurinn



