Stjörnuskoðun í október 2009 - afrit til geymslu
![]() |
Margt er að sjá á næturhimninum í október á alþjóðlegu ári stjörnufræðinnar. Á suðurhimni blasa við þrjár bjartar stjörnur sem mynda Sumarþríhyrninginn og þegar líður á kvöldið rís Sjöstirnið upp á himininn í austri. Sjöstirnið er án nokkurs vafa aðgengilegasta stjörnuþyrpingin á næturhimninum. Það er stórt og bjart og auðvelt að finna það sem glitrandi stjörnuský á næturhimninum. Með berum augum má sjá um 6-8 stjörnur en í handsjónauka og stjörnusjónauka kemur í ljós að það eru margfalt fleiri stjörnur í þyrpingunni.
Hér er nýjasta útgáfan af stjörnuskoðun mánaðarins
Reikistjarnan Júpíter er skærasta stjarna næturhiminsins. Í handsjónauka sjást litlir ljósdeplar í beinni röð út frá Júpíter. Þar eru á ferðinni fjögur björtustu tunglin sem saman nefnast Galileótunglin. Þau heita eftir Galileó Galilei sem fann þau þegar hann beindi sjónauka sínum til himins fyrir 400 árum. Við þokkalegar aðstæður má sjá móta fyrir skýjabeltunum á Júpíter í stjörnusjónauka.Hér fyrir neðan er slóð á pdf-skjal (rúmlega 1 MB) með stjörnukorti (fremri síðan) og leiðbeiningum fyrir byrjendur í stjörnuskoðun (aftari síðan). Við hvetjum alla sem það geta til þess að prenta út kortið og leiðbeiningarnar og kíkja á næturhimininn á fallegu haustkvöldi.
![]() |
Hér fyrir neðan er kort af himninum yfir Reykjavík sem uppfærist sjálfkrafa (af vefsíðunni AstroViewer.com). Á vefsíðunni er einnig hægt að fá upp stærra kort þar sem stilla má dagsetningu og tíma að vild.
Að lokum viljum við minnast á vefsíðurnar okkar um sólkerfið og stjörnumerkin.
Eldri greinar um stjörnuskoðun mánaðarins
Hér er safn greina sem hafa birst undir heitinu „Stjörnuskoðun mánaðarins“.



