Stjörnuskoðun í nóvember 2009 - afrit til geymslu
![]() |
Margt er að sjá á næturhimninum í nóvember á alþjóðlegu ári stjörnufræðinnar. Hátt á himni er lítið en bjart stjörnumerki sem nefnist Kassíópeia. Það er auðþekkt á því að skærustu stjörnurnar raðast upp í mynstur sem lítur út eins og bókstafurinn W. Fyrir neðan Kassíópeiu á himninum er að finna nálægustu stóru vetrarbrautina sem nefnist Andrómeduvetrarbrautin. Kjarni hennar sést með berum augum þar sem ljósmengun spillir ekki himninum.
Hér er nýjasta útgáfan af stjörnuskoðun mánaðarins
Sjöstirnið sést á austurhimni en það er án nokkurs vafa auðþekktasta stjörnuþyrpingin á næturhimninum. Það er stórt og bjart og lítur út eins og glitrandi stjörnuský. Með berum augum má sjá um 6-8 stjörnur en í handsjónauka og stjörnusjónauka koma í ljós margfalt fleiri stjörnur í þyrpingunni.Þegar líður á kvöldið rís stjörnumerkið Óríon upp á næturhimininn. Óríon var veiðimaður í grískum goðsögum og er auðþekktur á þremur björtum stjörnum í belti hans sem oft eru nefndar Fjósakonurnar. Fyrir neðan Fjósakonurnar er sverð Óríons. Í miðju þess er Sverðþokan sem sést með berum augum og er auðvelt að skoða í handsjónauka eða stjörnusjónauka.
Hér fyrir neðan er slóð á pdf-skjal (rúmlega 1 MB) með stjörnukorti (fremri síðan) og leiðbeiningum fyrir byrjendur í stjörnuskoðun (aftari síðan). Við hvetjum alla sem það geta til þess að prenta út kortið og leiðbeiningarnar og kíkja á næturhimininn á fallegu haustkvöldi.
![]() |
Hér fyrir neðan er kort af himninum yfir Reykjavík sem uppfærist sjálfkrafa (af vefsíðunni AstroViewer.com). Á vefsíðunni er einnig hægt að fá upp stærra kort þar sem stilla má dagsetningu og tíma að vild.
Einnig viljum við minnast á vefsíðurnar okkar um sólkerfið og stjörnumerkin.
Sjást norðurljós í kvöld?
Ef rauðleitur norðurljósakragi er yfir Íslandi á þessari mynd ættu norðurljós að sjást í kvöld. Kortið sýnir núverandi útbreiðslu og staðsetningu norðurljósakragans og er byggt á nýjustu mælingum bandaríska POES-gervitunglsins. Eftir því sem kraginn er rauðleitari og breiðari, þeim mun öflugari norðurljóst ættu að sjást. Það eru rafhlaðnar agnir frá sólinni sem valda norðurljósum og er helst að sjá kraftmikil norðurljós þegar mikil virkni er á yfirborði sólar og margir sólblettir sýnilegir (sjá nánar um myndun sólar í svari á Vísindavef Háskóla Íslands).

Sjá nánar: Fréttir af sólinni og geimveðrinu
Annað markvert sem tengist stjörnufræði
Við minnum loks á Vísindaþáttinn, sem er á dagskrá alla þriðjudaga milli klukkan 17:00 og 18:00 á Útvarpi Sögu 99,4. Í hverjum þætti er farið yfir hvað sjá má himninum. Hér eru upptökur af þáttunum í vetur.Eldri greinar um stjörnuskoðun mánaðarins
Hér er safn greina sem hafa birst undir heitinu „Stjörnuskoðun mánaðarins“.



