Stjörnuskoðun í janúar 2010 - afrit til geymslu

Athugaðu, opna í nýjum glugga. Prenta útSenda hlekk á þessa síðu til vinar

Margt er að sjá á næturhimninum í upphafi ársins 2010. Veiðimaðurinn Óríon fer fremstur í flokki stjörnumerkjanna en hann er auðþekktur á stjörnunum í beltinu sem eru yfirleitt nefndar Fjósakonurnar. Reikistjarnan Mars er áberandi á austurhimni þegar líður á kvöldið og upp úr miðnætti rís Satúrnus upp á himininn með hringa sína sem sjást í litlum sjónauka.

Hér er nýjasta útgáfan af stjörnuskoðun mánaðarins

Meðal annarra viðburða í mánuðinum má nefna loftsteinadrífuna Kvaðrantíta en geislapunktur hennar er efst í stjörnumerkinu Hjarðmanninum (sést á kortinu sem hægt er að ná í hér fyrir neðan). Þeir ættu að sjást síðdegis þann 3. janúar í norðvestri ef skyggni er gott. Best er að fara út fyrir mestu ljósmengungarsvæðin til þess að njóta þeirra. Erfitt er að spá fyrir fram um fjölda stjörnuhrapa en þau gætu verið á bilinu 20 til 100 á klukkustund við hámarkið í kringum kl. 19.

Hér fyrir neðan er slóð á pdf-skjal (rúmlega 1 MB) með stjörnukorti (fremri síðan) og leiðbeiningum fyrir byrjendur í stjörnuskoðun (aftari síðan). Við hvetjum alla sem það geta til þess að prenta út kortið og leiðbeiningarnar og kíkja á næturhimininn á fallegu haustkvöldi.

Hér fyrir neðan er kort af himninum yfir Reykjavík sem uppfærist sjálfkrafa (af vefsíðunni AstroViewer.com). Á vefsíðunni er einnig hægt að fá upp stærra kort þar sem stilla má dagsetningu og tíma að vild.

Gagnvirkt stjörnukort fyrir himininn yfir Íslandi

Einnig viljum við minnast á vefsíðurnar okkar um sólkerfið og stjörnumerkin.

Sjást norðurljós í kvöld?

Ef rauðleitur norðurljósakragi er yfir Íslandi á þessari mynd ættu norðurljós að sjást í kvöld. Kortið sýnir núverandi útbreiðslu og staðsetningu norðurljósakragans og er byggt á nýjustu mælingum bandaríska POES-gervitunglsins. Eftir því sem kraginn er rauðleitari og breiðari, þeim mun öflugari norðurljóst ættu að sjást. Það eru rafhlaðnar agnir frá sólinni sem valda norðurljósum og er helst að sjá kraftmikil norðurljós þegar mikil virkni er á yfirborði sólar og margir sólblettir sýnilegir (sjá nánar um myndun sólar í svari á Vísindavef Háskóla Íslands).

Sjá nánar: Fréttir af sólinni og geimveðrinu

Annað markvert sem tengist stjörnufræði

Við minnum loks á Vísindaþáttinn, sem er á dagskrá alla þriðjudaga milli klukkan 17:00 og 18:00 á Útvarpi Sögu 99,4. Í hverjum þætti er farið yfir hvað sjá má himninum. Hér eru upptökur af þáttunum í vetur.

Eldri greinar um stjörnuskoðun mánaðarins

Hér er safn greina sem hafa birst undir heitinu „Stjörnuskoðun mánaðarins“.