Stjörnutalning og birtumark himinsins
Við ágætar aðstæður úti í sveit má sjá einhvers staðar á bilinu 1200-1900 stjörnur með berum augum þar sem ljós trufla ekki. Aftur á móti veldur ljósmengun því að innan við 200 stjörnur sjást á himninum í stórborgum erlendis! Staðan er einnig slæm sums staðar í Reykjavík og á höfuðborgarsvæðinu þar sem sjást innan við 300 stjörnur.
Tvisvar sinnum á vetri fer fram alþjóðleg stjörnutalning þar sem áhugamenn um allan heim gá til himins og reyna að finna daufustu stjörnuna á himninum. Hún segir til um áhrif ljósmengunar því hægt er að sjá miklu daufari stjörnur þar sem ljós frá borgum og bæjum trufla ekki.
Svokallað birtustig er notað til þess að meta hvað stjörnur eru bjartar. Kvarðinn er öfugur og er birtustigið því hærra eftir því sem stjarnan er daufari! Í stórborgum eru daufustu stjörnurnar sem sjást með birtustig í kringum +3 eða +4 en úti í sveit eru daufustu stjörnurnar yfirleitt með birtustigið +5 eða +6.
World Wide Star Count
Í október fer fram stjörnutalning sem nefnist World Wide Star Count. Þá skoða stjörnuáhugamenn á norðurhveli stjörnumerkið Svaninn og reyna að sjá hvað hægt er að sjá margar stjörnur á svæðinu þar í kring.
Haustið 2009 tóku a.m.k. tveir íslenskir stjörnuáhugamenn þátt í þessari talningu, annar á Þingeyri en hinn við borgina Edmonton í Albertafylki í Kanada. Rétt er að geta þess að tíðin var óvenjuslæm á sunnanverðu landinu í október þetta ár og vonandi berast niðurstöður frá fleiri stöðum á Íslandi haustin 2010 og 2011.
Globe at Night
Í mars fer fram svipaður viðburður sem nefnist Globe at Night. Þar er stuðst við stjörnumerkið Óríon sem sést frekar illa á kvöldin frá Íslandi í mars þegar talningin fer fram. Óríon er lágt á lofti sem þýðir að ljósið frá stjörnunum þar verður fyrir meiri deyfingu en ljós frá stjörnum sem eru hátt á lofti.
Við höfum því útbúið kort yfir Litlabjörn, hala Drekans og Karlsvagninn í Stórabirni sem hægt er að nota til þess að meta ljósmengun á næturhimninum í mars. Athugið að það verður ekki almyrkur úti fyrr en eftir klukkan 10:15 um miðjan mars svo hæpið er að meta gæði himinsins fyrir þann tíma.
Hér er kort yfir nothæf stjörnumerki sem sjást á norðurhimni í Globe at Night verkefninu í mars (í staðinn fyrir Óríon sem er lágt á lofti).
Athugið að kortið nýtist aðeins í mars en ekki við stjörnutalninguna í október (þá er Karlsvagninn of lágt á himni en Svanurinn vel staðsettur).
Inni á Stjörnufræðivefnum er önnur grein um birtumark himins sem nefnist Hve dimmur er næturhimininn.

